Verkefni nefndarinnar eru m.a. þau að skilgreina mörk þjóðgarðsins og setja fram áherslur um skiptingu landssvæða innan hans í verndarflokka, fjalla um hugsanlegar aðkomuleiðir og þjónustumiðstöðvar, svæðisskiptingu og rekstrarsvæði og greina tækifæri með stofnun þjóðgarðs á byggðaþróun og atvinnulíf. Jafnframt er henni ætlað að gera tillögur að helstu áherslum í stjórnunar- og verndaráætlunum og atvinnustefnu fyrir þjóðgarðinn og lagafrumvarpi um þjóðgarðinn, þar sem m.a. er tekin afstaða til stjórnskipulags þjóðgarðsins.
Miðvikudaginn 22. ágúst, kl. 15:35-16:35 mun formaður nefndarinnar, Óli Halldórsson, kynna verkefni nefndar og svara spurningum áhugasamra um störf nefndarinnar.
Fundurinn fer fram á Hótel Héraði og eru allir velkomnir.
