Fara í efni
16.03.2020

Leiðbeiningar frá Íslenska gámafélaginu vegna Covid-19

Deildu
  • Almennt sorp þarf að vera í vel lokuðum pokum og ekki má yfirfylla tunnur.
  • Smitaðir einstaklingar þurfa sérstaklega að gæta þess að snýtibréf fari í vel lokuðum pokum í Gráu tunnuna fyrir almennt sorp.
  • Umfram sorpi sem ekki kemst í tunnur, þurfa íbúar að skila á gámasvæði.
  • Flokkun á endurvinnsluhráefni helst óbreytt enn sem komið er.

Þessi tilmæli eru til þessa ð koma í veg fyrir að starfsfólk okkar þurfi að snerta sorpið og til að draga úr smithættu.

 

Íslenska gámafélagið.