Fara í efni
24.08.2026

Lokahóf kofabyggðarinnar og barnastarfs sumarsins þriðjudag kl. 9:30-12:30

Deildu

Milli kl. 9:30 og 13:00 þriðjudaginn 25. ágúst verður formlegt lokahóf í kofabyggðinni sem var eitt af sumarnámskeiðum sem boðið var upp á fyrir börn í sumar.  Allir kofasmiðir, ættingjar og áhugasamir eru hvattir til að kíkja við og virða fyrir sér afraksturinn. Ef veður leyfir verður pylsugrill á svæðinu. Svæðið verður svo opið áhugasömum sem vilja byggja meira og leika sér á svæðinu fram á haust á eigin ábyrgð.

Undanfarin ár hefur umf. Sindri boðið upp á leikjanámskeið milli kl. 9-12 yfir sumarið en sá sér ekki fært að sjá um þau þetta sumarið. Sveitarfélagið hvatti félagasamtök og einstaklinga til þess að grípa boltann og bjóða upp á eitthvað fjölbreytt og skemmtilegt fyrir börnin.

Úr varð að börn í 1.-4. bekk gátu valið um fótbolta, körfubolta, leiki og frjálsar íþróttir, dans, leiklist, listsköpun, fab lab, vísindasmiðju og kofabyggð á Höfn og í Öræfum var boðið upp á tveggja vikna námskeið þar sem var farið í t.d. klifur, kajak, kofabyggð, listsköpun og fleira.  

Kofabyggðin sem var samstarfsverkefni sveitarfélagsins og nokkurra einstaklinga var eitt af sumarnámskeiðunum sem boðið var upp á fyrir börn í sumar. Þar gátu börn látið hugmyndaflug, verkvit og framkvæmdargleði blómstra með aðstoð og stuðningi frá fullorðnum einstaklingum. Markmiðið var samt að börnin gerðu þetta á sinn hátt sem þau svo sannarlega gerðu og risu um 15 fjölbreyttir kofar á svæðinu í sumar.

Í sumar sá sveitarfélagið um gæslu í Kátakoti milli kl. 8-9 á morgnana og frístund milli kl. 13-16 yfir 6 vikna tímabili milli 8. júní- 3. júlí annars vegar og 10.-21. ágúst hins vegar. Það var starfsfólk Vinnuskólans sem sá að mestu um gæslu sem um 5-10 börn sóttu að meðaltali og frístund sem um 10-20 börn sóttu að meðaltali.

Yfir 350 skráningar voru á námskeið sumarsins. Í lok leiklistar- og dansnámskeiða voru settar upp sýningar fyrir nánustu ættingja og stigu tveir dansarar af námskeiðinu á svið á Humarhátíð með glæsilegt dans atriði. Námskeiðin teygðu sig því út í menningar- og listalífið og í kofabyggðinni er nú risið heilt þorp sem vonandi flestir skoða á morgun.