Fara í efni
05.10.2026

Nemendur í 4.FG tóku út aðstæður á skólalóð Grunnskóla Hornafjarðar

Deildu

Mánudaginn 5. október komu nemendur í 4.FG í ráðhúsið og afhentu Hjalta Þór Vignissyni úttekt á leiksvæði skólans. Í samantektinni eru skráð atriði um það sem betur mætti fara og vakin athygli á atriðum sem snúa að öryggi barna á skólasvæðinu.

Úttektin fór fram 18. september og var unnin sem hluti af verkefni í námsgreininni Halló heimur 3. Nemendur gengu um svæðið, skráðu athugasemdir og tóku ljósmyndir af því sem vakti athygli þeirra.  

Erindið fær formlega umfjöllun í bæjarráði þann 13. október næst komandi.

Eitt helsta atriðið sem nemendur bentu á var umferð við Hafnarskóla. Að þeirra mati aka bílar stundum hratt fram hjá skólanum og bílaumferð inn á skólalóðina á frímínútum getur skapað hættu. Þá bentu þeir á að lítið sé um hindranir milli skólalóðar og götu og að aðstæður við bílastæði og Þrykkjuna geti verið varasamar þar sem börn eru mikið á ferðinni.

Á leiksvæðinu fundu nemendur ýmis atriði sem þeir töldu þarfnast lagfæringar. Þeir bentu meðal annars á slit á leiktækjum, óhljóð í rólum, málningu sem farin er að flagna og göt á neti í marki. Einnig komu fram athugasemdir um slit og skemmdir á körfuboltavelli og timburflötum.

Nemendur tóku jafnframt eftir glerbroti, grjóti og spýtum á eða við skólalóðina og bentu á takmarkaða lýsingu á miðsvæðinu.

Sveitarfélagið Hornafjörður þakkar nemendum fyrir vandaða vinnu og fyrir að láta sig öryggi og umhverfi skólans varða.