Undanfarna daga hefur kofabyggð risið á ógnarhraða við gamla verkstæðið hans Finns fyrir framan gömlu krossarabrautina við Drápskletta.
Um 40 börn á aldrinum 8-12 ára eru arkitektar, verkfræðingar og smiðir. Þau sjá um að reisa byggðina á sinn hátt út frá sínum hugmyndum.
Yngri krakkarnir gera þetta á „Villinga“ námskeiði og eldri krakkarnir gera þetta á vegum Þrykkjunnar. Þessi námskeið verða í boði fyrir börn í hverri viku til 3. júlí og svo aftur í ágúst. Þátttakendur setja líka niður kartöflur og rækta sitt eigið grænmeti, hafa tækifæri á að stunda ýmiskonar listsköpun, útivist og fleira.
Áhuginn og stemningin á svæðinu er ólýsanleg og börnin full áhuga, hugmyndum og krafti. Það er von þeirra er standa að þessu að kofabyggðin og skólagarðarnir verði sjálfbært með tímanum og um leið og jarðvegsflutningum í kringum svæðið líkur eru börnum og foreldrum þeirra velkomið að vera á svæðinu utan námskeiðstíma.
Alla virka daga til 3. júlí eru starfsmenn á svæðinu milli kl. 9-15 en utan þess tíma er öllum frjálst að vera þar á eigin ábyrgð (þegar það eru ekki jarðvegsflutningar í gangi, við látum vita hvenær það verður).

Kofabyggðin og skólagarðarnir eru sannkallað samvinnuverkefni sem margir leggja eitthvað til. Við erum innilega þakklát þeim verktökum og iðnaðarmönnum sem hafa fært okkur timbur, málningu, nagla, verkfæri og fleira. Einnig þökkum við fyrir kartöflu útsæðin frá Seljavöllum, aðstoðina frá áhaldahúsinu og einstaklingunum sem komu með afgangs timbur og gömlu pallana sína til okkar.
Svona aðstoð er ómetanleg og gerir krökkunum kleift að halda áfram. Þetta kennir börnunum líka svo vel hvernig á að byggja upp vinalegt og gott sjálfbært samfélag þar sem allir hjálpast að og vinna saman.
Ef einhver á timbur eða annað sem gæti mögulega nýst okkur þá má viðkomandi hafa samband við Ágústu Margréti í síma 8631475.
Auk þess sem börnin í bænum eru að byggja þá eru líka dans-, fab lab- og körfuboltanámskeið í gangi. Allt er þetta vel sótt og mikil ánægja þátttakenda. Umsjónamenn vilja koma á framfæri hrósi til þátttakenda fyrir að vera að standa sig gríðarlega vel. Enn er hægt að skrá sig á námskeið sumarsins á ABLER.
23 tillögur af nafni á svæðið bárust í nafnakeppnina og munu þátttakendur í kofabyggð og skólagörðum velja besta nafnið í byrjun næstu viku.
