Sveitarfélagið Hornafjörður hefur unnið nýja umferðaröryggisáætlun fyrir tímabilið 2026–2036.
Áætlunin byggir á greiningu umferðaröryggisgagna frá árunum 2015–2024 í samráði við hagaðila, með tilliti til kannana meðal íbúa og skólabarna og ábendingum íbúa um umferðaröryggismál. Þessar upplýsingar voru nýttar til að greina helstu áskoranir í umferðaröryggi, forgangssvæði og mögulegar úrbætur sem síðan mynduðu grunn að tillögum að nýrri áætlun..
Í nýju áætluninni eru 58 tillögur sem skiptast í fjögur megin viðfangsefni:
- öruggar götur í Höfn,
- öruggar skólaleiðir og óvarðir vegfarendur,
- öruggari Hringveg og aðra svæðisvegi með hliðsjón af ferðaþjónustu,
- fræðslu og vitundarvakningu um umferðaröryggi.
Ábyrgð á framkvæmd tillaganna skiptist á milli aðila. Sveitarfélagið ber meginábyrgð á tæplega helmingi tillaganna, einkum á umbótum innan Hafnar og við skólana í sveitarfélaginu. Vegagerðin ber meginábyrgð á um 40% tillaganna, þar á meðal mörgum stærri aðgerðum á Hringvegi og öðrum þjóðvegum, en þær tillögur sem eftir standa kalla á samstarf sveitarfélagsins og Vegagerðarinnar.
Fyrir íbúa þýðir áætlunin að umbætur í umferðaröryggi verða innleiddar í áföngum á næstu árum. Þar má meðal annars nefna lækkun ökuhraða, öruggari gönguþveranir, bætta aðstöðu fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur, öruggari skólaleiðir og umbætur á gatnamótum. Stærri verkefni á Hringvegi og öðrum þjóðvegum kalla almennt á lengri undirbúning og á samstarf við Vegagerðina.
Áætlunin setur langtímaramma fyrir þessa vinnu. Samþykkt hennar felur ekki í sér að allar 58 tillögurnar séu samþykktar til tafarlausrar framkvæmdar. Einstökum aðgerðum verður forgangsraðað og þær teknar sérstaklega til ákvörðunar í framkvæmdaáætlunum og við árlega fjárhagsáætlunargerð sveitarfélagsins.
Upplýsingamyndin hér að neðan veitir stutt yfirlit yfir áætlunina, ábyrgð og helstu áherslur hennar.

Hér er hægt að nálgast samantekt Umferðaröryggisáætlunar
