Fara í efni
30.09.2026

Nýir lágreistir ljósastólpar prófaðir við strandstíginn

Deildu

Sveitarfélagið Hornafjörður hefur fengið þrjá sérstaka ljósastólpa, svonefnda „ljósálfa“, að láni til reynslu við strandstíginn. Stólpunum hefur verið komið fyrir við göngustíginn fyrir aftan raðhúsin við Vesturbraut.

Stólparnir eru settir upp í mismunandi fjarlægð hver frá öðrum til að meta hversu þétt þeir þurfa að standa til að tryggja góða lýsingu. Nú þegar tekið er að rökkva fyrr á kvöldin gefst íbúum og vegfarendum tækifæri til að kynna sér lýsinguna og virkni stólpanna í reynd. Stólparnir þjóna einnig þeim tilgangi að hægt er að setjast á þá og hvíla lúin bein.

Stefnt er að því að setja upp lágreista stólpa af þessu tagi við strandstíginn í Óslandi. Meginmarkmiðið er að veita vegfarendum öruggt leiðarljós á gönguleiðinni en halda um leið ljósmengun í algjöru lágmarki til að raska ekki náttúruupplifun og myrkri á svæðinu. Sambærilegir stólpar hafa meðal annars verið nýttir á Reykjanesi eins og fjallað er um í frétt Víkurfrétta - https://www.vf.is/vidskipti/serhannadir-ljosastolpar-lysa-upp-strandleid-og-stiga.

/cdn/media/FRETTIR-MYNDIR/stolpi-2.jpg?v=1790760740

Hvað finnst þér?

Sveitarfélagið óskar eftir endurgjöf frá íbúum um hvernig þeim líst á stólpana, lýsinguna og fyrirhugaða staðsetningu þeirra. Ábendingar og athugasemdir má senda með tölvupósti á netfangið trausti@hornafjordur.is