Fara í efni
17.11.2026

Nýtt félagsstarf eldri borgara í Öræfum fer af stað í nóvember

Deildu

Svanhvít H. Jóhannsdóttir hefur tekið að sér að leiða og halda utan um félagsstarfið og er  markmiðið að skapa vettvang fyrir eldri borgara á svæðinu til að koma saman, njóta samveru, spjalla, hreyfa sig og efla félagsleg tengsl í heimabyggð.

Í nóvember verður byrjað með formlega dagskrá þar sem boðið verður upp á fjölbreytta viðburði. Samhliða því verður lögð rík áhersla á að hlusta á sjónarmið, hugmyndir og óskir þátttakenda um hvernig best sé að haga félagsstarfinu til framtíðar, hvaða viðburðir vekja mestan áhuga og hvaða tímasetningar henta best.

Dagskrá nóvembermánaðar

Boðið verður upp á eftirfarandi dagskrá í nóvember:

  • Miðvikudagur 18. nóvember kl. 14:00–15:00: 

    Kaffispjall á Kaffi Vatnajökli. Kynning á verkefninu þar sem sest verður niður yfir kaffibolla og hugmyndir og óskir íbúa varðandi framhald félagsstarfsins ræddar.

  • Föstudagur 20. nóvember kl. 13:00–14:00: 

    Hreyfing og útivist í Svínafelli. Gengið verður inn með fjalli. Bílum er lagt við samkomusvæðið við Hálsasker. (boðið verður upp á dagskrá innandyra ef veður hamlar útiveru).

  • Fimmtudagur 26. nóvember kl. 17:00–19:00: 

    Myndasýning og spjall í Hofgarði. Notaleg samverustund. 

  • Sunnudagur 29. nóvember kl. 13:00–14:00: 

    Hreyfing og ganga á Hofi. Gengið verður meðfram ytri girðingum á Hofi út á línuveg. Bílum er lagt við eystri Hofs-afleggjara. Upplagt er að enda gönguna í kaffisopa á Kaffi Vatnajökli á eftir fyrir þau sem vilja.

Allir eldri borgarar í Öræfum eru hjartanlega velkomnir að taka þátt og kynna sér starfið. 

Íbúar sem vilja koma ábendingum á framfæri, óska eftir frekari upplýsingum eða ræða hugmyndir um félagsstarfið geta haft samband við Svanhvíti í síma 770-0494 eða við velferðarsvið Sveitarfélagsins Hornafjarðar í síma 470-8011.