Sveitarfélagið Hornafjörður hefur opnað nýtt og aðgengilegt viðburðadagatal á nýjum vef sveitarfélagsins. Markmiðið er að auðvelda íbúum og gestum að fylgjast með því sem er í boði í sveitarfélaginu og skapa einn miðlægan stað fyrir alla viðburði á svæðinu.
Það sem gerir dagatalið sérstaklega gagnlegt er að allir geta skráð viðburði, ekki aðeins sveitarfélagið sjálft. Félagasamtök, fyrirtæki, stofnanir, listafólk og einstaklingar sem standa fyrir viðburðum innan sveitarfélagsins geta sent inn upplýsingar um sína viðburði og þannig hjálpað til við að halda dagatalinu lifandi og fjölbreyttu.
Á forsíðu sveitarfélagsins má finna hlekk á viðburðadagatalið þar sem hægt er að skoða komandi viðburði og senda inn nýja viðburði. Sjálft dagatalið er aðgengilegt í gegnum hlekk á forsíðunni:

Einfalt að skrá viðburð
Skráningarferlið er einfalt og fljótlegt, smella þarf á hnappinn "Senda inn viðburð". Við innsendingu þarf meðal annars að fylla út:
- Nafn viðburðar
- Staðsetningu
- Stutta og nákvæma lýsingu
- Dagsetningu og tíma
- Upplýsingar um tengilið
Mikilvægt er að setja inn mynd með viðburðinum, þar sem myndir gera viðburðina sýnilegri og aðlaðandi fyrir þá sem skoða dagatalið.
Þegar viðburður hefur verið sendur inn fer hann í yfirferð hjá starfsfólki sveitarfélagsins. Viðburðurinn birtist í dagatalinu þegar hann hefur verið samþykktur.
Breytingar eftir innsendingu
Ef þörf er á að leiðrétta eða uppfæra upplýsingar eftir að viðburður hefur verið sendur inn er hægt að senda tölvupóst á birting@hornafjordur.is. Starfsmaður sveitarfélagsins sér þá um að gera nauðsynlegar breytingar.
Betri yfirsýn yfir mannlífið
Með sameiginlegu viðburðadagatali verður auðveldara fyrir íbúa og gesti að sjá hvað er fram undan á svæðinu. Þótt margir viðburðir séu kynntir á samfélagsmiðlum getur verið erfitt að fá heildaryfirsýn þegar upplýsingar dreifast á marga staði. Viðburðadagatal sveitarfélagsins safnar upplýsingunum saman á einn stað og gerir fólki kleift að sjá á einfaldan hátt hvað er í boði hverju sinni.
Sveitarfélagið hvetur því alla sem standa fyrir viðburðum innan sveitarfélagsins til að nýta sér nýja kerfið og skrá viðburði í dagatalið.
