Sveitarfélagið Hornafjörður óskar eftir aðstoð íbúa og annarra sem ferðast um sveitarfélagið við að kortleggja þá staði þar sem farsíma- og fjarskiptasamband er veikt eða ekki til staðar.
Víða í sveitarfélaginu eru svæði þar sem símasamband er ótryggt, mjög veikt eða ekkert. Slíkt getur skapað veruleg óþægindi og haft áhrif á daglegt líf og atvinnustarfsemi, en ekki síður öryggi íbúa og ferðafólks þegar ekki er hægt að treysta á fjarskiptasamband ef slys eða önnur neyðartilvik koma upp.
Sett hefur verið upp innsláttar form þar sem íbúar og aðrir geta sent inn upplýsingar um fjarskiptasamband.
Upplýsingarnar verða nýttar til að sýna fram á umfang vandans og þrýsta á stjórnvöld og aðra viðeigandi aðila um nauðsynlegar úrbætur í fjarskiptamálum í sveitarfélaginu.
