Starfsmaður Gömlubúðar og mannfræðineminn Eugénie hlaut, ásamt Menningarmiðstöð Hornafjarðar, styrk úr Nýsköpunarsjóði námsmanna í vor til að framkvæma rannsókn Eugénie á viðhorfi íbúa sveitarfélagsins til ensku í daglegu lífi. Niðurstöðurnar, sem kynntar voru á opnum fundi í Gömlubúð 14. september, eru áhugaverðar og upplýsandi fyrir samfélagið okkar en þær varpa ljósi á hvernig íslenskir og erlendir íbúar upplifa tungumálanotkun í samfélaginu.
Rannsóknin er sú fyrsta sinnar tegundar í Sveitarfélaginu Hornafirði og fólst í mannfræðilegri nálgun. Eugénie safnaði og skráði frásögnum íslenskra og erlendra íbúa til að rannsaka staðbundin viðhorf til tungumálanotkunnar í sveitarfélaginu. Viðhorf til ensku reyndust fjölbreytt. Sumir íslenskir þátttakendur lýstu gremju yfir því að geta ekki alltaf notað íslensku, til dæmis í þjónustu eða á vinnustað. Aðrir töldu enskuna eðlilegan og gagnlegan hluta daglegra samskipta. Rannsóknin bendir til þess að það sé einkum sú krafa að skipta yfir í ensku sem geti valdið óþægindum, fremur en enska sem tungumál.
Sjónarhorn erlendra íbúa sýnir að enska gegnir oft lykilhlutverki þegar fólk kemur til landsins. Hún nýtist í vinnu og daglegu lífi og brúar bil. Sumir þátttakendur bentu á að íslenskunámskeið væru kennd á ensku og því þyrftu þeir fyrst að ná tökum á henni til að fóta sig í nýju samfélagi. Óvissa um hversu lengi fólk mun dvelja á Íslandi getur einnig haft áhrif á hvenær það leggur í íslenskunám.
Rannsóknin vekur spurningar um hvernig styðja megi við íslensku án þess að gera lítið úr mikilvægi enskunnar fyrir samskipti og inngildingu. Niðurstöðurnar gætu nýst við að efla íslenskunám og tengsl milli íbúa. Eugénie hyggur á frekari rannsóknir um þetta brýna málefni og þakkar þátttakendum kærlega fyrir sitt framlag til verkefnisins.
