Fara í efni
14.08.2026

Ríkistjórn Íslands í Nýheimum

Deildu

Ríkisstjórn Íslands fundaði með fulltrúum Sveitarfélagsins Hornafjarðar og Skaftárhrepps ásamt fulltrúum Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) í Nýheimum á Höfn fimmtudaginn 13. ágúst. Á fundinum var farið yfir helstu áherslumál og áskoranir svæðisins til næstu ára.

Bæjarstjóri sagði í upphafi fundar hversu ánægjulegt væri að fá tækifæri til að ræða milliliðalaust við ríkisstjórnina um stöðu og framtíð svæðisins. Það er ekki algengt að sveitarstjórnarfólki gefist kostur á að funda með ríkisstjórninni í heild sinni.

Fundurinn var markviss og farið yfir fjölmörg mál sem varða framtíð samfélagsins á Suðausturlandi.

Vatnajökulsþjóðgarður

Málefni Vatnajökulsþjóðgarðs voru fyrirferðarmikil. Sérstaklega var rætt um fyrirhugaða atvinnu- og innviðauppbyggingu við Jökulsárlón og mikilvægi þess að hagsmunir nærsamfélagsins verði hafðir að leiðarljósi. Bent var á að markmið Vatnajökulsþjóðgarðs samkvæmt lögum snúi ekki aðeins að náttúruvernd og útivist heldur einnig að byggðaþróun. Lögð var áhersla á að aðskilja þurfi uppbyggingu innviða annars vegar og úthlutun rekstrarleyfa hins vegar og að við úthlutun leyfa verði tekið tillit til samfélags- og umhverfisþátta.

Jafnframt var rætt um stöðu meginstarfsstöðva þjóðgarðsins í Skaftafelli og á Höfn. Innviðir í Skaftafelli eru komnir að þolmörkum og þjónustumiðstöðin þar hefur lítið breyst frá árinu 1974. Á Höfn, sem einnig er skilgreind sem meginstarfsstöð þjóðgarðsins, er engin þjónustumiðstöð.

Veggjöld 

Sérstaklega var rætt um fyrirhugað veggjald vegna nýs vegar um Hornafjörð. Nýi vegurinn er mikið framfaraskref fyrir samfélagið, stækkar vinnusóknarsvæði og bætir aðgengi íbúa að skólum, tómstundastarfi og annarri þjónustu.

Áætlað veggjald um Hornafjörð er þrefalt hærra en gjald sem er áætlað að leggja yfir nýja Ölfusárbrú. Lögð var áhersla á að gjaldtakan hafi önnur og meiri áhrif á daglegt líf íbúa en víða annars staðar og að mikilvægt sé að veggjöldin lækki verulega.

Vegaframkvæmdir

Farið var yfir nýlegar og fyrirhugaðar vegaframkvæmdir í sveitarfélaginu en alls liggja 192 kílómetrar af Hringveginum innan þess. Þetta varðar nýja vegi í Öræfum og Lóni auk nýrrar brúar yfir Jökulsá á Breiðamerkursandi.  Með þeim framkvæmdum sem fyrirhugaðar eru mun einbreiðum brúm fækka úr tólf í eina. Þessar framkvæmdir eru á 2. og 3. tímabili samgönguáætlunar en mikilvægt að flýta þeim eins og kostur er.

Framhaldsskólinn

Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu var einnig til umræðu og lögð áhersla á mikilvægi skólans fyrir byggðina. Aðgengi að framhaldsnámi í heimabyggð skiptir miklu fyrir ungt fólk og fjölskyldur á svæðinu.  Námsframboð FAS hefur verið að breikka, meðal annars í samstarfi við Verkmenntaskóla Austurlands.  Rætt var um mikilvægi þess að ríki og sveitarfélag haldi áfram að hlúa sameiginlega að skólanum.

Dýpkun á Grynnslunum

Farið var yfir stöðu dýpkunar á Grynnslunum við Hornafjarðarós. Þriggja ára samningur er í gildi um aukna dýpkun og árangurinn fyrsta sumarið lofar góðu. Örugg innsigling er forsenda uppsjávarveiða og -vinnslu á Höfn.  Alls var landa 58 þúsund tonnum af uppsjávarfiski á Höfn árið 2025. Jafnframt var lögð áhersla á áframhaldandi rannsóknir á áhrifum mögulegra leiðigarða til að tryggja dýpi yfir Grynnslin. 

Björgunarmiðstöð í Öræfum

Þá var rætt um undirbúning björgunarmiðstöðvar í Öræfum. Gert er ráð fyrir sameiginlegri miðstöð viðbragðsaðila á svæðinu þar sem meðal annars slökkvilið, sjúkraflutningar, heilsugæsla, lögregla og Vegagerðin koma að verkefninu. Áhersla var lögð á náið samstarf allra aðila við áframhaldandi mótun og framkvæmd verkefnisins. 

Fjallaskóli Íslands

Rætt var um Fjallaskóla Íslands og mikilvægi þess að áfram verði stutt við starfsemi hans. Uppbygging sérhæfðs náms í fjallamennsku við rætur Vatnajökuls á sér langa sögu og sveitarfélagið leggur sitt af mörkum með því að veita skólanum endurgjaldslausa aðstöðu í Hofgarði.

Fjarskipti

Á fundinum var einnig rætt um stöðu fjarskipta á svæðinu. Bent var á að enn séu alltof margir staðir þar sem farsímasamband er lélegt eða ekkert. Fulltrúar sveitarfélaganna lögðu áherslu á að úrbætur í fjarskiptum væru forgangsmál.  Gott og öruggt fjarskiptasamband skiptir miklu fyrir íbúa, atvinnulíf og þá fjölmörgu ferðamenn sem fara um svæðið. Sérstaklega var undirstrikað mikilvægi fjarskipta út frá öryggissjónarmiðum, enda geti öruggt farsímasamband skipt sköpum þegar slys eða önnur óvænt atvik verða.

Fleiri mál bar á góma og fundurinn gaf gott tækifæri til að koma helstu hagsmunamálum svæðisins milliliðalaust á framfæri við ríkisstjórnina og ræða þær áskoranir og tækifæri sem blasa við samfélögunum á Suðausturlandi á næstu árum.