Fara í efni
20.08.2026

Sjónarhóll fær Svansvottun

Deildu

Leikskólinn Sjónarhóll á Höfn hlaut Svansvottun fimmtudaginn 20. ágúst. Vottunin er viðurkenning á þeim áherslum sem lagðar voru til grundvallar við hönnun og byggingu leikskólans, meðal annars hvað varðar umhverfisáhrif, heilnæma innivist og val á byggingarefnum.

Börnin tóku virkan þátt í athöfninni og sungu nokkur lög með miklum glæsibrag.

/cdn/media/FRETTIR-MYNDIR/20260820_101103.jpg?v=1787239196

 

Bergþóra Góa Kvaran og Guðrún Lilja Kristinsdóttir, sérfræðingar hjá Umhverfis- og orkustofnun, afhentu Maríönnu Jónsdóttur leikskólastjóra Svansvottunina fyrir hönd leikskólans. Við athöfnina voru einnig Björk Pálsdóttir og Geir Þorsteinsson, eigendur verktakafyrirtækisins Þingvaðs ehf., sem vann að byggingu leikskólans. Þá voru bæjarfulltrúar og starfsmenn umhverfis- og framkvæmdasviðs viðstaddir.

Svanurinn er opinbert umhverfismerki Norðurlandanna og er markmið þess að draga úr umhverfisáhrifum við kaup á vörum, byggingu húsa og við þjónustu.

Svansvottun bygginga felur í sér að horft er heildstætt til umhverfisáhrifa byggingarinnar. Gerðar eru kröfur sem meðal annars snúa að orkunotkun, vali og meðhöndlun byggingarefna og takmörkun skaðlegra efna. Jafnframt er lögð áhersla á góða innivist og gæði byggingarinnar. Vottunin er því staðfesting á því að umhverfis- og gæðasjónarmið hafi verið höfð að leiðarljósi frá hönnun og í gegnum byggingarferlið.

Vel heppnað hús

Við afhendinguna þakkaði Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri, fyrir vottunina og sagði húsið sérlega vel heppnað. Hann nefndi sérstaklega hversu bjart væri í húsinu og hversu vel hefði tekist til með loft- og hljóðvist.  Sagði hann þessa eiginleika húsnæðisins skipta miklu máli enda væri leikskólinn fyrst og fremst vinnu- og dvalarstaður barnanna og starfsfólksins. Góð birta, loftgæði og hljóðvist ættu því eftir að hafa jákvæð áhrif á daglegt starf og líðan þeirra sem dvelja í húsinu.