Þrjár tunnur við hvert heimili
Heimili í dreifbýli eru með þrjár tunnur: fyrir pappír og pappa, plast og blandaðan úrgang. Rétt flokkun tryggir að endurvinnsluefni nýtist til endurvinnslu og minnkar það magn sem fer til urðunar. Hún hjálpar líka sorphirðunni að ganga vel. Ef úrgangur er rangt flokkaður getur tunnan verið skilin eftir ólosuð þar til flokkunin hefur verið lagfærð.
- Pappír og pappi: Dagblöð, pappakassar, pappírsumbúðir og fernur. Hafðu pappírinn hreinan og þurran, ekki setja hann í plastpoka og brjóttu saman pappakassa til að spara pláss.
- Plast: Plastumbúðir, plastpokar, filmur, plastflöskur og bakkar. Tæmdu og hreinsaðu umbúðirnar og settu smærri plasthluti í stærri plastpoka sem er vel bundið fyrir.
- Blandaður úrgangur: Allt sem á ekki heima í endurvinnsluflokkunum, til dæmis bleyjur, blautþurrkur, ryksugupokar, kattasandur og einnota hanskar.
Upplýsingar um aðra úrgangsflokka má finna á vef sveitarfélagsins. Þar á meðal eru skilagjaldsskyldar umbúðir, raftæki, spilliefni, textíll, gler, málmar og matarúrgangur.
Veturinn nálgast – eru tunnurnar þínar tilbúnar?
Vindur, snjór og hálka geta gert sorphirðu erfiðari. Nokkur einföld atriði geta komið í veg fyrir vandamál:
- Tryggðu tunnurnar svo þær fjúki ekki um koll, fjúki burt eða skemmist.
- Tryggðu lokin svo þau haldist lokuð og úrgangur dreifist ekki.
- Tryggðu gott aðgengi svo sorphirðuaðilar komist örugglega að tunnunum, sérstaklega í snjó og hálku.
Er of mikið eða of lítið pláss í tunnunum? Hafðu samband ef þú vilt breyta fjölda eða stærð tunna.

Smelltu á myndina til að sækja pdf skjal.
Gistir ferðafólk hjá þér?
Við hvetjum þá sem taka á móti gestum til að hafa skýrar flokkunarleiðbeiningar aðgengilegar. Á vef sveitarfélagsins er hægt að sækja leiðbeiningarnar, prenta þær út og deila þeim með gestum.
Skráning og beiðnir
Hægt er að hafa samband í síma 470 8000 eða senda tölvupóst á xiaoling@hornafjordur.is eða afgreidsla@hornafjordur.is.
Á vef sveitarfélagsins má einnig finna flokkunarleiðbeiningar, sorphirðudagatal og nýjustu upplýsingar.
