Fara í efni
16.09.2026

Sorpþjónusta í dreifbýli

Deildu

Á næstu mánuðum mun Sveitarfélagið Hornafjörður birta upplýsingar í þremur hlutum um sorpþjónustu í dreifbýli. Upplýsingarnar verða birtar í Eystrahorni og á vef sveitarfélagsins og einnig á Facebook síðunni.

Farið verður yfir þá þjónustu sem nú stendur heimilum í dreifbýli til boða, flokkunarkerfið og mikilvægi þess, umhirðu sorpíláta og hvernig best sé að undirbúa sorpílát undir veturinn. 

Í síðasta hlutanumverða kynntar nokkrar mögulegar leiðir til að bæta þjónustuna og íbúum boðið að taka þátt í stuttri könnun. Markmiðið er að fá betri mynd af því hvaða lausnir myndu nýtast heimilum í dreifbýli best áður en tekin er ákvörðun um hvaða úrbætur eigi að setja í forgang.

1. hluti: Veist þú hvaða sorpþjónusta stendur þér til boða?

/cdn/media/FRETTIR-MYNDIR/Sorpthjonusta-i-dreifbyli-Hornafjardar_s1_online-version_20260826.png?v=1789555952
Smelltu á myndina til að sækja.pdf útgáfu

 

Í fyrsta hluta er yfirlit yfir þá sorpþjónustu sem nú stendur heimilum í dreifbýli til boða, meðal annars:

  • Reglubundin sorphirða frá heimilum · Heyrúlluplast · Spilliefni og raftæki · Hjólbarðar · Brotajárn · Textíll · Móttöku- og flokkunarstöðin á Höfn
  • Þar má einnig finna sorphirðudagatal fyrir þann tíma sem eftir er af árinu 2026 ásamt upplýsingum um hvaða þjónustu þarf að skrá sig fyrir og hvar hægt er að nálgast nýjustu upplýsingar um sorphirðu.

Fylgstu með fyrsta hlutanum í Eystrahorni eða kynntu þér upplýsingarnar hér á vef sveitarfélagsins.

Fleiri upplýsingar koma á næstu mánuðum.