Undanfarið hefur sveitarfélagið fjallað um þá sorpþjónustu sem nú þegar er í boði í fyrir íbúa í dreifbýli og hvernig við getum flokkað og meðhöndlað úrganginn okkar betur en nú viljum horfa til framtíðar.
Ýmsar leiðir koma til greina til að bæta sorpþjónustu í dreifbýli. Mismunandi lausnir hafa í för með sér ólíkan kostnað og mismunandi kröfur varðandi framkvæmd og rekstur. Áður en ákveðið verður hvert næsta skref á að vera viljum við því vita hvað myndi raunverulega nýtast íbúum best.
Fleiri sérstakir söfnunardagar
Nú þegar eru skipulagðar sérstakar safnanir fyrir ákveðna úrgangsflokka frá heimilum.
Einn möguleiki væri að fjölga söfnunardögum, til dæmis fyrir: Raftæki · Spilliefni · Hjólbarða
Þannig væri hægt að auðvelda íbúum að losa sig við slíkan úrgang án þess að koma þurfi upp nýrri varanlegri aðstöðu.
Stuðningur við heimajarðgerð
Matarúrgangur í dreifbýli er nú almennt meðhöndlaður heima eða settur með blönduðum úrgangi.
Einn möguleiki væri að styðja betur við heimajarðgerð, til dæmis með styrk frá sveitarfélaginu til kaupa á jarðgerðarvél fyrir heimili.
Þetta gæti hjálpað heimilum að meðhöndla matarúrgang heima og minnkað það magn matarúrgangs sem fer í blandaðan úrgang.
Grenndarstöð fyrir endurvinnsluefni
Myndi það hjálpa að geta skilað ákveðnum endurvinnsluefnum nær heimilinu?
Hægt væri að koma upp minni grenndarstöðvum á völdum stöðum fyrir úrgangsflokka á borð við: Gler · Málma · Skilagjaldsskyldar umbúðir
Þetta gæti dregið úr þörfinni á ferðum til Hafnar með þessa úrgangsflokka
Móttökustöð með fleiri úrgangsflokkum
Annar möguleiki væri stærri móttökustöð þar sem hægt væri að skila fleiri tegundum úrgangs á einum stað.
Slík aðstaða gæti veitt íbúum fleiri möguleika nær heimili en myndi jafnframt kalla á meiri fjárfestingu og reglulegan rekstur, þar á meðal tæmingu, þrif og eftirlit.
Stuðningur vegna fyrirferðarmikils úrgangs
Húsgögn, úrgangur vegna minni framkvæmda og annar fyrirferðarmikill úrgangur getur verið erfiður og kostnaðarsamur í meðhöndlun þegar langt er í móttöku- og flokkunarstöðina.
Einn möguleiki væri ávísana- eða afsláttarkerfi, þar sem heimilum væri gert kleift að skila takmörkuðu magni af tilteknum fyrirferðarmiklum úrgangi á móttöku- og flokkunarstöðina án gjalds eða gegn lægra gjaldi.
Hvað myndi nýtast þér best?
Áður en ákveðið verður hvort og hvernig þjónustunni verði breytt viljum við vita:
- Hvaða úrgang er erfiðast fyrir þitt heimili að losa sig við?
- Hvaða úrbætur myndu raunverulega nýtast þínu heimili?
- Eru aðrar lausnir sem við ættum að skoða?
Hjálpaðu okkur að ákveða hvaða úrbætur ætti að setja í forgang.
Samantekt á niðurstöðum könnunarinnar verður birt að henni lokinni.
