Fara í efni
25.03.2020

Staðan í dag 25. mars

Deildu

Staðan er þá, sú sama og í gær fimm smit hafa greinst í sveitarfélaginu og enginn er mikið veikur 53 eru í sóttkví. 

Því er beint til íbúa að virða samkomubannið sem er í gildi og halda uppi tilmælum um 2 m. bil á milli einstaklinga og halda uppi öflugu hreinlæti. Með þessum hætti náum við að draga úr fjölgun smita og draga úr álagi á heilbrigðisþjónustuna. Beinum því einnig til íbúa að halda ró sinni og yfirvegun, það voru ágæt tilmæli Víðs Reynissonar að deila glaðlegum myndum á fésbókinni til að viðhalda léttri lund.

Matthildur Ásmundardóttir, bæjarstjóri.