Fara í efni
25.08.2026

Starf vinnuskólans með miklum blóma í sumar

Deildu

Vinnuskóli sveitarfélagsins var í boði frá 8. júní- 29. júlí. Þar störfuðu 45 unglingar í 7.-10. bekk og 7 flokksstjórar við fjölbreytt störf. Þetta er meiri fjöldi en starfað hefur í vinnuskólanum undanfarin ár og fögnum við því. 

Andinn var góður og mörg verk unnin til að fegra og betra bæinn okkar. En einnig fengu ungmennin ýmiskonar fræðslu, hvetjandi fyrirlestur og lögð var áhersla á hópefli í gegnum leik og starf. Eins og undanfarin ár endaði Vinnuskólinn á útilegu og fóru ungmennin þetta árið í ofsalega vel heppnaða ferð á Hala.

Sveitarfélagið þakkar öllum fyrir vel unnin störf og hvetur ungmenni til að sækja aftur um að ári.