Fara í efni
22.09.2026

Starfsemi Leikskólans Sjónarhóls

Deildu

Aukinn stuðningur við starfsemi Leikskólans Sjónarhóls

Starfsemi Leikskólans Sjónarhóls hefur staðið frammi fyrir nokkrum áskorunum nú í upphafi haustannar. Enn vantar að tryggja grunnmönnun leikskólans og auk þess hafa veikindi hrjáð starfsfólk sem hefur haft áhrif á daglegt skólastarf, meðal annars inntöku og aðlögun nýrra barna.

Unnið hefur verið að því að finna lausnir og styrkja starfið til lengri tíma.  Mannauðsstjóri sveitarfélagsins hefur haft aukna viðvera í skólanum til að styðja við stjórnendur og starfsfólk.

Sú vinna og greining á stöðunni hefur leitt í ljós að mikilvægt er að létta ákveðnum rekstrar- og umsýsluverkefnum af stjórnendum svo þeir geti einbeitt sér betur að faglegri stjórnun, starfsfólki og skólastarfi. Jafnframt er þörf á að styrkja skipulag ýmissa þátta í daglegum rekstri skólans.

Bæjarstjóri, Hjalti Þór Vignisson, fundaði með starfsfólki Sjónarhóli um stöðuna mánudaginn 21. september og ræddi stöðuna.  Sagði hann mikilvægt að horfa til þess að veikindi hafa skapað mikið álag í starfseminni. Lagði hann áherslu á að það væri sameiginlegt verkefni sveitarfélagsins, stjórnenda og starfsfólks að vinna að lausnum og skapa eins góða umgjörð um starf leikskólans og kostur er.  

Nýtt starf til stuðnings starfseminni

Bæjarráð Hornafjarðar hefur samþykkt að ráðið verði í nýtt starf við Leikskólann Sjónarhól. Verkefnin snúa meðal annars að móttöku og samskiptum við foreldra, skrifstofuhaldi og skráningum, upplýsingamiðlun, innkaupum og birgðahaldi, daglegum rekstri auk öryggis-, heilbrigðis- og eldvarnamála.  Starfsmaðurinn mun einnig sinna ýmsum verkefnum er varðar utan um hald um upplýsingar, heimasíðu og stuðning við fundi og samskiptum við þjónustuaðila. Þá verður viðkomandi stjórnendum og starfsfólki til stuðnings í ýmsum verkefnum sem koma upp í daglegum rekstri.

Markmiðið með breytingunni er að skapa skýrara skipulag og betri verkaskiptingu innan leikskólans og gera stjórnendum kleift að verja meiri tíma í faglega stjórnun og stuðning við starfsfólk.