Fara í efni
12.08.2026

Stuðningsfjölskylda óskast

Deildu

Félagsþjónusta Hornafjarðar auglýsir eftir stuðningsfjölskyldu sem boðið getur barni inn á heimili sitt í 1-4 sólarhringa í mánuði í þeim tilgangi að létta álagi af fjölskyldu og styrkja stuðningsnet barnsins. Um er að ræða úrræði veitt á grundvelli laga um málefni fatlaðs fólks og barnaverndarlaga.

Fyrir nánari upplýsingar má hafa samband við Sædísi Ösp. 

Sædís Ösp Valdemarsdóttir
Umsjónarfélagsráðgjafi