Loftslags- og orkusjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki til uppbyggingar hleðsluinnviða við fjölbýlishús. Styrkjunum er ætlað að styðja við uppbyggingu hleðsluinnviða á sameiginlegum bílastæðum fjöleignarhúsa og auðvelda húsfélögum sem standa frammi fyrir sérstaklega kostnaðarsamri uppbyggingu á slíkum innviðum að ráðast í framkvæmdir.
Styrkhæf eru húsfélög fjöleignarhúsa sem eru með 8 íbúðir eða fleiri og þar sem byggingarleyfi var gefið út áður en breyting á byggingarreglugerð nr. 112/2012 tók gildi 20. júní 2018. Fjölbýlishús sem hafa þegar komið upp hleðslustöðvum á sameiginlegum bílastæðum eru ekki styrkhæf.
Styrkir eru meðal annars veittir fyrir lagnaleiðir frá rafmagnstöflu að hleðsluinnviðum við sameignarstæði og fyrir stækkun, færslu eða nýja heimtaug fjölbýlishússins.
Styrkupphæð getur numið allt að 5 milljónum króna á hvert verkefni, en þó aldrei meira en 50% af heildarkostnaði.
Umsóknarfrestur er til 1. október 2026 kl. 15:00.
Sótt er um í gegnum island.is á vef Loftslags- og orkusjóðs, þar sem einnig má finna nánari upplýsingar um umsóknarferli, kröfur og fylgigögn.
