Fara í efni
02.09.2026

Sundlaugabíó í Sundlaug Hafnar

Deildu

Síðastliðinn föstudag, var haldið sundlaugabíó í Sundlaug Hafnar. 
Talið er að um það bil 120 manns hafi mætt og heppnaðist viðburðurinn í heildina mjög vel.

Viðburðurinn var hluti af fjölmenningarbíósýningum sem fjölmenningarráð hefur skipulagt, sem fara aftur af stað núna í haust og verða auglýstar von bráðar.

Fyrir sundið var gestum boðið upp á grillaðar pulsur, og hófst svo kvikmyndasýningin klukkan 19:30. Stórmyndin Stella í Orlofi var sýnd, með enskum texta, svo öll gátu fylgst með þessar skemmtilegu, sígildu kvikmynd.

Eftir kvikmyndina bauðst gestum svo að fara á Olís og fá sér frían ís og þannig fullkomna þessa rammíslensku kvöldstund.

Gestir virtust mjög ánægð með viðburðinn og nefndu mörg að það væri gaman að hafa fleiri bíósýningar í sundlauginni, enda nokkuð auðvelt í framkvæmd og skemmtileg afþreying fyrir alla fjölskylduna.

Viðburðurinn var styrktur af Þjóðminjasafni Íslands og Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu. Viðburðurinn var hluti af dagskrá „Sundlaugasumars 2026” en verkefnið var sett var af stað í kjölfar skráningar íslenskrar sundlaugamenningar á lista UNESCO yfir óáþreifanlegan menningararf.

Fjölmenningarráð Sveitarfélagsins Hornafjarðar, Framhaldsskóli Austur-Skaftafellssýslu og Sundlaug Hafnar skipulögðu viðburðinn og þakka öllum þeim fyrir sem sáu sér fært að mæta.

Myndir af viðburðinum má skoða hér fyrir neðan.