Fara í efni
05.11.2026

Sveitarfélagið hyggst selja Gagnaveitu Hornafjarðar

Deildu

Sveitarfélagið Hornafjörður hyggst selja allan eignarhlut sinn í Gagnaveitu Hornafjarðar ehf. og gefst áhugasömum kaupendum nú kostur á að gera tilboð í félagið. Námu tekjur félagsins rúmum átta milljónum króna á síðasta ári. Tilboðsfrestur rennur út 25. nóvember næstkomandi.

Þetta kemur fram í sölulýsingu sem ráðgjafarfyrirtækið KPMG hefur unnið fyrir sveitarfélagið vegna fyrirhugaðrar sölu. Sveitarfélagið á í dag 100% hlut í Gagnaveitu Hornafjarðar.

Gagnaveita Hornafjarðar rekur ljósleiðarakerfi sem nær til Öræfa, Suðursveitar, Mýra og Nesja auk kerfis á milli stofnana sveitarfélagsins. 

Samkvæmt sölulýsingunni er heildarlengd stofn- og dreifikerfisins um 90 kílómetrar. Lagðar hafa verið 203 heimtaugar og eru 59 tengingar í mánaðarlegri áskrift.

Fram kemur að viðhaldsþörf kerfisins sé almennt lítil, að undanskildum hluta þess í Öræfum þar sem þörf er á uppfærslu.

Kerfið er opið fjarskiptafélögum á grundvelli samninga. Vodafone þjónustar notendur í Öræfum og Suðursveit en Míla er með tengingu á Hestgerðishnútu.

Söluferlið í tveimur áföngum

Söluferlið verður í tveimur áföngum. Í þeim fyrri er áhugasömum kaupendum gert að undirrita skilmálabréf og skila inn tilboðsformi ásamt nauðsynlegum upplýsingum. Eyðublöðin verða aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins.

Í síðari áfanga munu forsvarsmenn sveitarfélagsins bjóða þeim aðilum sem taldir eru hæfastir til samningsviðræðna þar sem frekari upplýsingar verða veittar.

Frestur til að skila tilboðum er til klukkan 16:00 miðvikudaginn 25. nóvember 2026.

KPMG hefur umsjón með söluferlinu og er Guðmundur Freyr Hermannsson, verkefnastjóri á ráðgjafarsviði fyrirtækisins, tengiliður vegna fyrirspurna. Hægt er að senda fyrirspurnir á netfangið ghermannsson@kpmg.is.

Sækja sölulýsingu