Kjörskrá vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar laugardaginn 29. ágúst 2026 verður aðgengileg til skoðunar í afgreiðslu ráðhússins frá 7. ágúst 2026 og fram að kjördegi.
Kjósendur eru hvattir til að kynna sér hvort þeir séu á kjörskrá.
Hægt er að fletta upp kjörstað og kjördeild á www.kosning.is.
Athygli er vakin á breytingu á kjörstöðum í sveitarfélaginu. Kjörstaðirnir í Holti og Heppuskóla hafa verið sameinaðir í einn kjörstað. Kjósendur með lögheimili á Mýrum greiða því atkvæði í Heppuskóla á Höfn.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst 27. júlí 2026. Þeir sem ekki geta kosið á kjördag geta greitt atkvæði utan kjörfundar hjá sýslumönnum innanlands eða á kjörstöðum erlendis.
Yfirkjörstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar
