Fara í efni
07.07.2026

Umherfisviðurkenning

Deildu

 

Sumarið er komið og nú er tilvalinn tími til að njóta fallegs og vel hirts umhverfis um allan Hornafjörð..

Við leitum alltaf að einstaklingum, lögbýlum og fyrirtækjum sem leggja sitt af mörkum til að gera sveitarfélagið grænna, hreinna og sjálfbærara.

Tekið er við ábendingum og tilnefningum allt árið um kring. Ef þér dettur einhver í hug sem á skilið viðurkenningu viljum við endilega heyra frá þér.

Við mat á tilnefningum má meðal annars horfa til:

  • Snyrtilegrar og vel hirtrar umgengni
  • Líffræðilegrar fjölbreytni, trjáræktar og aðstæðna fyrir fugla og frævandi skordýr
  • Góðrar flokkunar úrgangs, moltugerðar og hringrásarhugsunar
  • Ábyrgrar umgengni við dýr og náttúruna
  • Sjálfbærra og umhverfisvænna lausna á heimilum, lögbýlum eða í rekstri fyrirtækja

Enginn þarf að vera fullkominn – það sem skiptir mestu máli er einlægur vilji til að hugsa vel um umhverfið og vera öðrum hvatning.

 

Hvernig tilnefnir þú? 

Sendu okkur ábendingu með efnislínunni „Umhverfisviðurkenning 2026“. Við tökum með ánægju á móti öllum ábendingum.

Xiaoling Yu
Umhverfisfulltrúi