Unnið er að fjölmörgum verkefnum sem snúa að uppbyggingu og endurnýjun íþróttamannvirkja á Hornafirði. Ákveðið hefur verið að bjóða út framkvæmdir við lagningu gervigrass á Jökulfellsvelli og endurnýjun hlaupabrautar. Þá hefur verið ákveðið að bjóða út endurnýjun gervigrass í Bárunni, þar sem nýlega var lokið við endurnýjun lýsingar. Samhliða þessu er valkostagreining um uppbyggingu íþróttahúss í fullum gangi.
Framkvæmdir á Jökulfellsvelli boðnar út
Búið er að bjóða út framkvæmdir við lagningu gervigrass á Jökulfellsvelli og endurnýjun hlaupabrautarinnar. Um er að ræða umfangsmiklar endurbætur á íþróttasvæðinu sem munu bæta aðstöðu til knattspyrnu og frjálsíþrótta.
Með tilkomu gervigrass verður mögulegt að nýta knattspyrnuvöllinn betur yfir árið og skapa aukið svigrúm til æfinga og keppni. Hlaupabrautin er áfram mikilvæg fyrir frjálsíþróttafólk, til að styrkja möguleika til æfinga og mótahalds og ekki síst fyrir almenning til að nýta til hreyfingar og útvistar.
Ný lýsing í Bárunni og endurnýjun gervigrass fram undan
Nýlega var lokið við endurnýjun lýsingar í knattspyrnuhúsinu Bárunni. Með framkvæmdinni hefur aðstaðan í húsinu verið bætt og skilyrði til æfinga orðið betri.
Jafnframt hefur verið ákveðið að bjóða út endurnýjun gervigrass í húsinu. Núverandi gras var komið til ára sinna.
Samráð og greiningar vegna uppbyggingar íþróttahúss
Samhliða framkvæmdum við núverandi íþróttamannvirki er fram undan vinna við að móta framtíðaruppbyggingu íþróttahúss á Hornafirði.
Næsta skref er samráðsferli þar sem mismunandi valkostir um uppbyggingu íþróttahúss verða teknir til skoðunar. Samhliða samráðinu verður unnin kostnaðargreining á valkostunum og greining á mögulegu rekstrarfyrirkomulagi.
Með þessari vinnu er stefnt að því að leggja heildstætt mat á ólíkar útfærslur, bæði með tilliti til stofnkostnaðar og rekstrar til framtíðar. Niðurstöðurnar munu skapa grunn fyrir ákvarðanatöku um staðsetningu íþróttahússins. Stefnt er að niðurstöðu á næstu vikum og að hönnun fari fram í kjölfarið.
Bætt aðstaða á Silfurnesvelli
Á Silfurnesvelli var malbik lagt á göngustíg sem tengir saman svæði golfvallarins. Framkvæmdin auðveldar umferð um völlinn og er liður í styðja það þróttmikla starf sem fram fer hjá golfklúbbnum.
