Fara í efni
09.11.2026

Verum viðbúin: Nýr bæklingur um viðbúnað heimila

Deildu

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hefur gefið út bæklinginn Verum viðbúin, sem ætlað er að efla viðbúnað almennings og styrkja seiglu samfélagsins. 

Í bæklingnum er að finna hagnýtar og aðgengilegar upplýsingar um hvernig einstaklingar og fjölskyldur geta undirbúið sig fyrir óvæntar aðstæður sem geta raskað daglegu lífi, svo sem náttúruhamfarir, óveður, rafmagnsleysi og truflanir á fjarskiptum.

Meðal annars er fjallað um mat og neysluvatn, húshitun, samskipti, greiðslukerfi og rýmingar. Einnig er að finna gátlista yfir nauðsynjar sem gott er að hafa tiltækar á heimilinu. Miðað er við að heimili geti sinnt grunnþörfum sínum í að minnsta kosti þrjá daga ef röskun verður á grunnþjónustu.

Bæklingurinn er aðgengilegur á íslensku, ensku og pólsku auk þess sem boðið er upp á auðlesna útgáfu og upplýsingar á táknmáli.

Við hvetjum íbúa til að kynna sér bæklinginn og ræða saman á heimilinu um hvernig best sé að bregðast við ef óvæntar aðstæður skapast.

Kynntu þér Verum viðbúin og nálgastu bæklinginn