Fara í efni
29.06.2026

Vísisvöllur vígður við Hrollaugsstaði

Deildu

Nýr frjálsíþróttavöllur Ungmennafélagsins Vísis við Hrollaugsstaði í Suðursveit var formlega tekinn í notkun við hátíðlega athöfn laugardaginn 27. júní sem haldin var samhliða fjölmennu frjálsíþróttamóti. Keppendur alls staðar að af landinu mættu til leiks og tóku þátt í fjölbreyttum greinum.

Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, ávarpaði gesti við vígsluna og minnti á að bæði Ungmennafélagið Vísir og ÍSÍ eigi rætur að rekja til ársins 1912.  Við athöfnina tóku einnig til máls Jóhanna Íris Ingólfsdóttir fyrir hönd USÚ, Sigurður Óskar Jónsson fyrir hönd UMFÍ og Sveinn Margeirsson fyrir hönd FRÍ og færðu Ungmennafélaginu Vísi gjafir í tilefni dagsins. Núverandi bæjarstjóri Hornafjarðar, Hjalti Þór Vignisson, og fyrrverandi bæjarstjóri, Sigurjón Andrésson, ávörpuðu jafnframt gesti og afhentu félaginu gjafir af þessu tilefni.  

Kvenfélagið á svæðinu sá um veitingar fyrir gesti. Dagurinn markar mikilvægt skref í uppbyggingu félags- og íþróttalífs í Suðursveit.

Til hamingju Ungmennafélagið Vísir.