Hornafjörður náttúrulega

Stefnan Hornafjörður, náttúrulega! var fyrst innleidd árið 2021. Hún var endurskoðuð árið 2025 og uppfærð stefna samþykkt í bæjarráði 12. febrúar 2026. Markmið endurskoðunarinnar var að skerpa áherslur og gera stefnuna að markvissara stjórntæki fyrir sveitarfélagið.
Í uppfærðri stefnu hefur stoðum hennar verið fækkað úr fjórum í þrjár til að einfalda framsetningu og skýra forgangsröðun.
Stoðirnar eru nú:
- Umhverfi
- Fólkið
- Þjónusta
Mynda þær grunn að stefnumótun sveitarfélagsins.
Stoðirnar
Umhverfi

Snýr að sjálfbærni, loftslagsmálum og vernd náttúrunnar. Þar er lögð áhersla á ábyrga auðlindanýtingu, hringrásarhagkerfi, minni úrgang og að sveitarfélagið nái kolefnishlutleysi í eigin starfsemi fyrir árið 2038.
Fólkið

Fjallar um velferð íbúa og samfélagslega innviði sem styðja við heilbrigði, jöfnuð og gott mannlíf. Áhersla er lögð á inngildingu, fjölmenningu, jöfn tækifæri og gæði í skóla-, frístunda- og velferðarþjónustu.
Þjónusta

Snýr að hlutverki sveitarfélagsins gagnvart íbúum og hagsmunaaðilum. Þar er lögð áhersla á faglega, skilvirka og aðgengilega stjórnsýslu, aukna upplýsingagjöf, gagnsæi og stafræna þróun þjónustunnar.
Framtíðarsýnin er áfram sú að Sveitarfélagið Hornafjörður sé eftirsóknarverður og fjölskylduvænn búsetukostur þar sem lífsgæði, góð þjónusta og nýsköpun fara saman í sátt við náttúru og samfélag. Stefnan á að styrkja sameiginlega sýn íbúa, starfsfólks og stjórnenda á framtíð sveitarfélagsins.
Ef einhverjar spurningar vakna hafið endilega samband við verkefnisstjóra á natturulega@hornafjordur.is.