Félagsmiðstöðin Þrykkjan leitar að nýjum liðsfélaga
Félagsmiðstöðin Þrykkjan leitar að nýjum liðsfélaga
Við óskum eftir jákvæðum, ábyrgum og traustum einstaklingi í 65% starf. Viðkomandi þarf að eiga auðvelt með samskipti, geta unnið sjálfstætt og vera tilbúinn að takast á við fjölbreytt verkefni. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni
Vinna með börnum og unglingum í Þrykkjunni frá 14:10-17:00 á daginn og svo þrjú kvöld í viku.
Efla almennan félagsþroska barna og ungmenna.
Dagleg verefni tengd starfseminni
Hæfnikröfur
Umsækjandi þarf að hafa áhugi á börnum og unglingum og velferð þeirra.
Mikilvægt er að umsækjandi hafi til að bera þolinmæði, stundvísi og gott lundarfar auk lipurðar í mannlegum samskiptum. Reynsla af sambærilegu starfi er kostur en ekki skilyrði.
Umsækjandi þarf að vera orðinn 18 ára.
Umsóknarfrestur er til 19. október
Skriflegar umsóknir ásamt ferilskrá og meðmælendum berist til Þórgunnar Torfadóttur sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs thorgunnur@hornafjordur.is og hún gefur einnig frekari upplýsingar um starfið.
Laun greidd samkvæmt samningum launanefndar Sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.
Áhugasamir af öllum kynjum hvattir til að sækja um.
Athygli er vakin á því að við ráðningu er óskað eftir sakavottorði og að umsóknir geta gilt í 6 mánuði eftir að umsóknarfrestur rennur út.