Fara í efni
Laus störf

Leikskólinn Sjónarhóll auglýsir eftir yfirmatráði

Umsóknarfrestur: 23.10.2026
Sveitarfélagið Hornafjörður
Fullt starf

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Að elda næringarríkan og góðan mat við hæfi barna og í samræmi við leiðbeiningar landlæknis.
  • Stjórna innkaupum fyrir eldhús
  • Útbúa matseðla
  • Skipuleggja starfið í eldhúsi 
  • Sinna þrifum, þvotti og frágangi
  • Önnur tilfallandi störf tengd eldhúsi

Hæfniskröfur:

  • Reynsla sem matráður eða af öðru sambærilegu starfi
  • Reynsla sem yfirmaður
  • Stundvísi, frumkvæði, skipulagshæfni og drifkraftur í starfi
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Góð íslenskukunnátta

Laun greidd samkvæmt samningum launanefndar Sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.

Umsóknarfrestur er til 23. október 2026

Áhugasamir af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um.

Sækja um starf

Með umsókn skal fylgja afrit af menntunargögnum ásamt ferilskrá og meðmælendum. Frekari upplýsingar veita Maríanna í síma 4708491 og Elínborg í síma 4708492.

Leikskólinn Sjónarhóll er glæsilegur 8 deilda leikskóli með metnaðarfullu starfsfólki sem er til í að fá áhugasaman liðsauka. Leikskólinn er heilsuleikskóli sem leggur áherslu á útiveru og að kenna börnum færni í gegnum leik.

Athygli er vakin á því að við ráðningu leikskólastarfsmanns er óskað eftir sakavottorði og að umsóknir geta gilt í 6 mánuði eftir að umsóknarfrestur rennur út.