Fara í efni
Laus störf

Sérfræðingur á safni

Umsóknarfrestur: 05.11.2026
Sveitarfélagið Hornafjörður
Fullt starf

Menningarmiðstöð Hornafjarðar rekur þverfaglega stofnun sem sér meðal annars um fjögur söfn sveitarfélagsins, lista-, byggða-, bóka- og héraðsskjalasafn. Starfið er fjölbreytt og felur í sér þátttöku í verkefnum þvert á starfsemi Menningarmiðstöðvarinnar, meðal annars við sýningar, viðburði, miðlun og starfsemi safna. Jafnframt er gert ráð fyrir að viðkomandi taki þátt í öðrum verkefnum Menningarmiðstöðvarinnar eftir þörfum. Áhersla er lögð á að safnið og Menningarmiðstöðin öll auðgi samfélagið og sé í virku samtali við íbúa og hagaðila.

Laun eru greidd samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst eða samkvæmt samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ábyrgð á faglegu starfi Listasafns Svavars Guðnasonar og daglegri umsjón þess í samráði við forstöðumann
  • Umsjón með sýningarrýmum, safnkosti og varðveislu á sviði listasafnsins
  • Skipulagning og uppsetning sýninga og samskipti við listamenn, söfn og aðra samstarfsaðila
  • Skrif og eftirfylgni styrkumsókna
  • Þátttaka í fjölbreyttum verkefnum Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar, svo sem sýningum, viðburðum, miðlun og öðru menningarstarfi þvert á söfn og svið stofnunarinnar
  • Önnur tilfallandi verkefni og verkefnastjórn á vegum Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Menntun sem nýtist í starfi eða yfirgripsmikil reynsla á sviði safna og menningarstarfa
  • Reynsla af sambærilegum störfum eða verkefnastjórnun
  • Reynsla af umsóknum og eftirfylgni styrkja
  • Góðir skipulagshæfileikar og lipurð í samskiptum
  • Góð tök á íslensku og ensku í ræðu og riti
  • Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður
  • Þekking á myndlist í sveitarfélaginu kostur

Fríðindi

  • Frítt í sund og heilsustyrkur starfsmanna sveitarfélagsins

Umsóknarfrestur er til 5. nóvember 2026

Umsókn með ferilskrá, meðmælendum og kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið skal sendast rafrænt.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Kristín Vala Þrastardóttir, forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar, á netfanginu kristinvala@hornafjordur.is og í síma 470-8051.

Forstöðumaður áskilur sér rétt að falla frá auglýsingu.

Sækja um starf