Fara í efni
Laus störf

Starf við stuðningsþjónustu aldraðra

Umsóknarfrestur: 20.11.2026
Sveitarfélagið Hornafjörður
Fullt starf

Stuðnings- og virkniþjónusta óskar eftir einstaklingi í 100% stöðu við stuðningsþjónustu aldraðra. Áhersla er lögð á að bera virðingu fyrir einkalífi, heimili einstaklings og fjölskyldu hans. Unnið er eftir stefnu Þjónandi leiðsagnar.

Starfið er unnið í dagvinnu. 

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Aðstoða þjónustunotendur við heimilishald
  • Draga úr félagslegri einangrun
  • Góð íslenskukunnátta og færni í mannlegum samskiptum
  • Tilfallandi þrif á starfstöðvun velferðarsvið
  • Aðstoða við hádegismat
  • Önnur tilfallandi verkefni samkvæmt starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Bílpróf
  • Stundvísi, samviskusemi, sveigjanleiki, jákvæðni og frumkvæði í starfi.
  • Hreint sakavottorð

Fríðindi

  • Frítt í sund
  • Lýðheilsustyrkur

Nánari upplýsingar veitir Sigrún Bessý Guðmundsdóttir stjórnandi stuðnings- og virkniþjónustu, bessy@hornafjordur.is

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands ísl. sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Ráðið er í starfið óháð kyni og eru öll kyn hvött til að sækja um.

Umsóknarfrestur til 20.11.2026

Sækja um starf