Sveitarfélagið Hornafjörður auglýsir eftir mannauðsstjóra
Við leitum að framsýnum og metnaðarfullum einstaklingi til að leiða uppbyggingu og þróun mannauðsmála í sveitarfélaginu í samstarfi við stjórnendur. Mannauðsstjóri ber ábyrgð á faglegri stjórnun mannauðsmála, launavinnslu og tengdra ferla með það að markmiði að tryggja skilvirkni, jafnræði, fagmennsku og góða þjónustu við stjórnendur og starfsfólk.
Um er að ræða 100% starf og er um staðbundið starf í Hornafirði að ræða. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eigi síðar en 1. janúar 2027.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Mannauðsstjóri er deildarstjóri mannauðs- og launadeildar sveitarfélagsins.
- Stjórnun og fagleg forysta mannauðs- og launadeildar og fer þar með mannaforð og ber ábyrgð á daglegum rekstri deildarinnar.
- Ábyrgð á umsjón og eftirfylgni mannauðs- og launamála sveitarfélagsins.
- Ráðgjöf og stuðningur við bæjarstjóra og stjórnendur í mannauðs- og launamálum.
- Mótun, innleiðing og eftirfylgni mannauðsstefnu sveitarfélagsins.
- Umsjón með launavinnslu og jafnlaunakerfi.
- Umsjón með vinnuverndarmálum og áhættumati í samstarfi við trúnaðarmenn.
- Umsjón með stjórnenda- og starfsmannahandbók sveitarfélagsins, verkferlum og reglum sem falla undir málaflokkinn, m.a. ráðningarferlum.
- Innleiðing og utanumhald með innri vef starfsfólks.
- Þátttaka í fjárhagsáætlanagerð og umsjón og eftirfylgd með launaáætlun.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfinu er skilyrði, svo sem sálfræði eða mannauðsstjórnun.
- Reynsla sem nýtist í starfi, reynsla af teymisvinnu og færni til að leiða hóp fólks er skilyrði.
- Þekking og reynsla af skrifstofustörfum, áætlanagerð, greiningu og gerð verkferla er æskileg.
- Mjög góð almenn tölvufærni og færni til að tileinka sér nýja tækni og hugbúnað er skilyrði.
- Gott vald á íslensku og hæfni til að miðla upplýsingum í ræðu og riti.
- Sjálfstæði, þjónustulund, lipurð í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót.
- Frumkvæði, festa, góð skipulagshæfni og sjálfstæð og vönduð vinnubrögð.
- Hæfni til að vinna undir álagi og takast á við flókin mál á faglegan hátt.
Fríðindi
- Frítt í sund í Sundlaug Hornafjarðar og heilsueflingarstyrkur
Laun eru samkvæmt kjarasamningi launanefndar sambands íslenskra sveitarfélaga og Visku/BHM. Ráðið er í starfið óháð kyni og eru öll kyn hvött til að sækja um.
Nánari upplýsingar um starfið veitir:
Jóna Benný Kristjánsdóttir, sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs – jonabenny@hornafjordur.is