Fara í efni
Laus störf

Velferðarsvið auglýsir starf við stuðningsþjónustu aldraðra.

Umsóknarfrestur: 12.10.2026
Sveitarfélagið Hornafjörður
Fullt starf

Stuðnings- og virkniþjónusta óskar eftir einstaklingi í 100% stöðu við stuðningsþjónustu aldraðra. Meginmarkmið starfsins er að aðstoða þjónustunotendur við heimilishald og  draga úr félagslegri einangrun. Áhersla er lögð á að bera virðingu fyrir einkalífi, heimili einstaklings og fjölskyldu hans. Unnið er eftir stefnu Þjónandi leiðsagnar.

Starfið er unnið í dagvinnu. 

Hæfniskröfur: 

  • Stundvísi, samviskusemi, sveigjanleiki, jákvæðni og frumkvæði í starfi. 
  • Hreint sakavottorð 
  • Bílpróf 

Nánari upplýsingar veitir Sigrún Bessý Guðmundsdóttir stjórnandi stuðnings- og virkniþjónustu, bessy@hornafjordur.is. 

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands ísl. sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Ráðið er í starfið óháð kyni og eru öll kyn hvött til að sækja um.

Umsóknarfrestur til 12.10.2026

Sækja um starf