Sækja um lóð
Sækja má um lausar lóðir á þar til gerðu eyðublaði á Íbúagátt sveitarfélagsins.
Í umsókn skal koma fram hvort umsækjandi sækir um lóð til eigin búsetu eða í öðrum tilgangi. Í umsókn skal einnig koma fram fyrirhuguð tímaáætlun umsækjanda m.a. um upphaf framkvæmda, fokheldi, töku húss í notkun og lóðarfrágang. Ennfremur skulu umsækjendur leggja fram í umsókn upplýsingar um fjármögnun byggingarframkvæmda og þar sem við á, staðfestingu fjármálastofnunar um greiðsluhæfi og möguleika á lánafyrirgreiðslu vegna fyrirhugaðrar húsbyggingar. Vegna umfangsmikilla framkvæmda er sveitarfélaginu heimilt að óska eftir ítarlegri upplýsingum frá umsækjanda. Umsækjandi skal vera í skilum með opinber gjöld til Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
Sækja um lóð






