Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa
1. fundur
30. apríl 2020
kl.
10:00
-
11:00
skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
Bartosz Skrzypkowski
byggingarfulltrúi
Brynja Dögg Ingólfsdóttir
umhverfis- og skipulagstjóri
Borgþór Freysteinsson
slökkviliðsstjóri
Gestur Leó Gíslason
verkefnastjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Bartosz Skrzypkowski
Byggingarfulltrúi
Dagskrá
1.
Byggingarleyfisumsókn: Víkurbraut 29 - viðbygging við hjúkrunarheimili
Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við hjúkrunarheimili að Vikurbraut 29 lögd fram. Núverandi bygging og ný viðbygging munu saman hýsa hjúkrunarheimili fyrir 30 heimilismenn. Auk heimilishlutans mun byggingin hýsa dagvistun fyrir allt að 10 þjónustuþega, kapellu, líkhús fyrir sveitarfélagið og matreiðslueldhús.
Byggingaráform samþykkt.
2.
Byggingarleyfisumsókn: Borgartún 6 - einbýlishús
Umsókn frá Local Guide ehf. um byggingarleyfi fyrir íbúðarhús að Borgartún 6 lögd fram. Húsið verður flutt full klárað frá Stokkseyri að Hofi.
Byggingaráform samþykkt.
3.
Byggingarleyfisumsókn: Víkurbraut 24 - breyting á innra skipulag
Á lóðinni Víkurbraut 24 Landnúmer 160032 og staðgreininúmer 7708-6-94430110 matshluti 01 á Höfn í Hornafirði er til staðar einlyft bygging sem undanfarin ár hefur hýst leikskólann Krakkakot. Nú hefur leikskólastarfið verið flutt annað og fyrirhugað er að umbreyta innra skipulagi hússins með það fyrir augum að nota húsið fyrir starfsemi félags- og fræðslusviðs.
Byggingaráform samþykkt.
4.
Byggingarleyfisumsókn: Hnappavellir 7 - tengivirki
Umsókn frá Landsnet hf. um byggingarleyfi fyrir tengivirki að Hnappavöllum lögð fram.
Byggingaráform samþykkt.
5.
Byggingarleyfisumsókn: Jöklasel F2181954 - niðurrif
Ís og ævintýri ehf óska eftir heimild Sveitarfélagsins Hornafjarðar til að rífa og fjarlægja fasteignina Jöklasel fasteignanúmer F2181954. Um er að ræða 241 m2 þjónustuhús sem stendur á Þormóðarhnútu við jökuljaðar Vatnajökuls. Þá verður jafnframt fjarlægt af svæðinu tveir geymslugámar - annar hýsir díselrafstöð enn hinn er geymslugámur fyrir ýmiss verkfæri, þá mun verða fjarlægð rotþró sem tilheyrir skálanum ásamt Vatnsveitu. Tveir stórir Olíutankar verða einnig fjarlægðir.
Málinu frestað. Óskað er eftir frekari gögnum.
6.
Byggingarleyfisumsókn: Víkurbraut 27A-H: raðhús
Umsókn frá JEK ehf. um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir 8 íbúða raðhús að Víkurbraut 27. Um er að ræða íbúðir fyrir aldraða.
Byggingaráform samþykkt. Umsækjandi skal leggja fram tillögu að lausnum vegna hæðarmunar húsa og landmótun í aðliggjandi landi.