Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa
10. fundur
15. janúar 2021
kl.
09:00
-
09:40
skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
Bartosz Skrzypkowski
byggingarfulltrúi
Borgþór Freysteinsson
slökkviliðsstjóri
Gestur Leó Gíslason
verkefnastjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Bartosz Skrzypkowski
Byggingarfulltrúi
Dagskrá
1.
Eftirlitsferðir byggingarfulltrúa - niðurstöður
Byggingarfulltrúi fer yfir niðurstöður eftirlitsferðar 05.01.2021
Lagt fram til kynningar
2.
Stöðuleyfisumsókn - Sölubás til móts við Gömlubúð - endurnýjun
Dyngja Travel ehf. sækir um endurnýjun á leyfi fyrir söluhús á torg til móts við Gömlubúð. Bæjarráð samþykkti erindi að sínu leyti þann 12.01.2021 skv. samþykkt og gjaldskrá um götu og torgsölu.
Stöðuleyfi samþykkt til 12 mánaða.
3.
Stöðuleyfisumsókn: Stekkaklettur - Vinnuskúr
Hlynur Pálmason sækir f.h. Home Soil ehf. um endurnýjun á stöðuleyfi fyrir vinnuskúr til geymslu verkfæra og byggingarefna á lóð Stekkaklettur.
Stöðuleyfi samþykkt til 12 mánaða. Slökkviliðsstjóri bendir á slökkvitæki skal vera til staðar í skúrnum.
4.
Byggingarleyfisumsókn - Hagaleira 12, einbýlishús
Jóhannes Hjalti Danner sækir um leyfi til að byggja einbýlishús á Hagaleiru 12. Aðaluppdrættir hafa verið yfirfarnir og leiðréttir skv. athugasemdum. Bæjarstjórn samþykkti breytingar og grenndarkynningu á 281. fundi þann 14.01.2021.
Byggingaráform samþykkt.
5.
Byggingarleyfisumsókn: Hnappavellir - Aðveitustöð
RARIK ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir aðveitustoð að Hnappavöllum. Aðaluppdrættir hafa verið samþykktar 12.04.2020 en framkvæmdir eru nú þegar hafnar.
Byggingarleyfi samþykkt