Fara í efni

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

13. fundur
15. júní 2021 kl. 09:00 - 10:00
skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
Bartosz Skrzypkowski byggingarfulltrúi
Brynja Dögg Ingólfsdóttir umhverfis- og skipulagstjóri
Borgþór Freysteinsson slökkviliðsstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Bartosz Skrzypkowski Byggingarfulltrúi
Dagskrá
1.
Byggingarleyfisumsókn: Stafafellsfjöll lóð 48 - viðbygging við frístundahús
Málsnúmer 202007056
Óðinn Eymundsson sækir um byggingarleyfi til að byggja við frístundahús á lóð nr. 48. Um er að ræða 64,1m² viðbyggingu á einni hæð innan byggingarreits.
Byggingarleyfi samþykkt skv. 13.gr. mannvirkjalaga nr. 160/2010.
2.
Byggingarleyfisumsókn Reynivellir 2a (L225395) - geymsla
Málsnúmer 202009013
Skúli Gunnar Sigfússon sækir um byggingarleyfi fyrir skemmu á Reynivöllum 2a. Bæjarstjórn samþykkti grenndarkynningu þann 15.04.2021.
Byggingarleyfi samþykkt þann 10.05.2021 skv. 13.gr. mannvirkjalaga.
3.
Byggingarleyfisumsókn Skaftafell 1D - skemma
Málsnúmer 202011034
Vatnajökulsþjóðgarður ehf. sækir um leyfi til að reisa vélageymslu við þjónustumiðstöð Þjóðgarðsins í Skaftafelli. Óveruleg breyting á deiliskipulagi var samþykkt þann 12.05.2021.
Byggingaráform samþykkt skv. 11.gr. mannvirkjalaga.
4.
Byggingarleyfisumsókn Hrollaugsstaðir - breyting á notkun
Málsnúmer 202011062
Sveitarfélagið Hornafjörður sækir um leyfi fyrir breytingar á Hrollaugsstöðum. Um er að ræða breytingar á hluta byggingar sem notaður var fyrir skóla/heimavist í fimm íbúðir. Bæjarstjórn hefur heimilað að fallið verður frá grenndarkynningu þann 10.12.2020.
Byggingarleyfi var samþykkt þann 06. maí 2021 skv. 13.gr. mannvirkjalaga. Heimilt er að víkja frá einstökum ákvæðum 6.hluta byggingarreglugerðar 112/2012 skv. greinargerð hönnuðar sbr. 6.1.5.gr. sömu reglugerðar.
5.
Byggingarleyfisumsókn - Horn 1, viðbygging við veitingarhús
Málsnúmer 202101090
Umsókn frá Ómari Antonssyni um byggingarleyfi til að byggja við Viking Cafe á Horni. Bæjarstjórn samþykkti að falið verði frá grenndarkynningu þann 11.02.2021
Byggingarleyfi samþykkt skv. 13 gr. mannvirkjalaga.
6.
Byggingarleyfisumsókn - Reynivellir 2, gestahús
Málsnúmer 202104087
Suðursveit ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir gestahús á Reynivöllum 2. Bæjarstjórn samþykkti að falla frá grenndarkynningu þann 15.04.2021. Til staðar er umsögn Minjastofnunar Íslands.
Byggingarleyfi samþykkt þann 06.05.2021 skv. 13. gr. mannvirkjalaga.
7.
Byggingarleyfisumsókn - Hafnarbraut 4, breyting á burðarvirki og útliti
Málsnúmer 202104098
Hafnarbraut 4 ehf. sækir um byggingarleyfi til að breyta byggingu á Hafnarbraut 4. Um er að ræða breytingu á burðarvirki og á útliti í atvinnuhúsnæði.
Byggingarleyfi samþykkt þann 28.05.2021 skv. 13. gr. mannvirkjalaga.
8.
Byggingarleyfisumsókn - Niðurrif Kvísker F2182204 byggingum nr.13 og 14
Málsnúmer 202104119
Gísli Sigurjón Jónsson f.h. Kvísker ehf. sækir um leyfi til niðurrifs á geymslum matshluta 13 og 14 á Kvísker fasteignarnúmer F2182204. Ástand mannvirkja er lélegt og skapar hættu fyrir aðliggjandi hús.
Byggingarleyfi samþykkt skv. 13. gr. mannvirkjalaga.
9.
Tilkynning um framkvæmd - Stafafellsfjöll 47, aukahús á lóð
Málsnúmer 202104067
Guðmundur Ólafsson tilkynnir framkvæmd undanþegin byggingarleyfi. Um er að ræða nýtt 24,6m² gestahús á lóð nr. 47 í Stafafellsfjöllum.
Framkvæmd uppfyllir ákvæði 2.3.5.gr. byggingarreglugerðar 112/2012.
10.
Tilkynning um framkvæmd - Vogabraut 2, framkvæmdir utanhúss
Málsnúmer 202104086
Kristján Rúnar Hauksson tilkynnir framkvæmd undanþegin byggingarleyfi. Um er að ræða stækkun gluggaops á vesturveggi húss á Vogabraut 2.
Framkvæmd uppfyllir ákvæði 2.3.5.gr. byggingarreglugerðar.
11.
Stöðuleyfisumsókn - Jökulsárlón - 3 salernisgámar (endurnýjun)
Málsnúmer 202105134
Vatnajökulsþjóðgarður sækir um endurnýjun á stöðuleyfi fyrir 3 salernisgáma við Jökulsárlón.
Endurnýjun á stöðuleyfi samþykkt skv. 2.6.1 gr. byggingarreglugerðar.
12.
Stöðuleyfisumsókn - Matarvagn plan Hafnarbraut 38
Málsnúmer 202104073
Ladislav Skála sækir um stöðuleyfi fyrir matarvagn á plani við Hafnarbraut 38. Bæjarráð samþykkti erindi að sínu leyti þann 27.04.2021 skv. samþykkt og gjaldskrá um götu og torgsölu.
Stöðuleyfi samþykkt þann 10.05.2021 skv. 2.6.1 gr. byggingarreglugerðar.
13.
Stöðuleyfisumsókn - Skaftafell - Móttökuhús tjaldsvæði
Málsnúmer 202106047
Vatnajökulsþjóðgarður sækir um stöðuleyfi fyrir söluskála við tjaldsvæði í Skaftafelli.
Stöðuleyfi samþykkt skv. 2.6.1. gr. byggingarreglugerðar.