Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa
14. fundur
17. september 2021
kl.
09:15
-
10:00
skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
Bartosz Skrzypkowski
byggingarfulltrúi
Brynja Dögg Ingólfsdóttir
umhverfis- og skipulagstjóri
Borgþór Freysteinsson
slökkviliðsstjóri
Gestur Leó Gíslason
verkefnastjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Bartosz Skrzypkowski
Byggingarfulltrúi
Dagskrá
1.
Byggingarleyfisumsókn - Bugðuleira 7, fjölbýlishús
Mikael ehf. sækir um leyfi til að byggja fjölbýlishús á Bugðuleiru 7. Framkvæmd er í samræmi við gildandi deiliskipulag. Aðaluppdrættir voru samþykktir þann 15.07.2021.
Byggingarleyfi samþykkt skv. 13.gr. laga um mannvirki nr. 160/2010.
2.
Byggingarleyfisumsókn - Hagaleira 13, einbýlishús
Eggert Helgi Þórhallsson sækir um byggingarleyfi fyrir einbýlishús á Hagaleiru 13. Bæjarstjórn samþykkti að heimilt verði að breyta staðsetningu bílskúrs og aðkomu að húsinu án breytingar á deiliskipulagi þann 14.01.2021. Bæjarráð samþykkti að heimilt verði að hafa þakskyggni óverulega út fyrir byggingarreit án breytingar á deiliskipulagi þann 13.07.2021.
Byggingarleyfi samþykkt skv. 13.gr. mannvirkjalaga.
3.
Tilkynning um framkvæmd - Birkikot, vélageymsla
Sigurjón Arason tilkynnir um framkvæmd á lóð Birkikot. Um er að ræða nýja 39,8 fm vélageymslu.
Framkvæmd uppfyllir ákvæði 2.3.5.gr. byggingarreglugerðar 112/2012.
4.
Tilkynning um framkvæmd - Víkurbraut 26, breyting á innra skipulag
Sveitarfélagið Hornafjörður tilkynnir framkvæmd við breytingu á innra skipulagi hússins að Víkurbraut 26 (Mjallhvít). Árið 2006 var innra skipulagi breytt með sameiningu íbúða 202,203,204. Fyrirhuguð er að koma íbúði 204 í upprúnarlegt horft. Gert er ráð fyrir EI-90 brunahólfun.
Framkvæmd uppfyllir ákvæði 2.3.5.gr. byggingarreglugerðar.
5.
Stöðuleyfisumsókn Hnappavellir 1 - geymslugámar
Local Guide ehf. sækir um stöðuleyfi fyrir tvo geymslugáma á Hnappavöllum 1. Samþykki landeiganda er til staðar.
Stöðuleyfi samþykkt skv. 2.6.1. gr. byggingarreglugerðar.
6.
Byggingamál - Drög að reglugerð um (11,) breytingu á byggingarreglugerð nr. 1122012.
Drög að reglugerð um (11.) breytingu á byggingarreglugerð nr. 112/2012 voru opin til umsagnar.
Lagt fram til kynningar.
7.
Byggingamál - Yfirferð eignaskiptayfirlýsinga
Erindi frá Þjóðskrá Íslands þar sem tilkynnt er breytt verklag. Þjóðskrá Íslands er frá og með 1. september hætt að yfirfara eignaskiptayfirlýsingar fyrir hönd sveitarfélaga.
Lagt fram til kynningar.