Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa
3. fundur
12. júní 2020
kl.
09:00
-
10:00
skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
Bartosz Skrzypkowski
byggingarfulltrúi
Brynja Dögg Ingólfsdóttir
umhverfis- og skipulagstjóri
Borgþór Freysteinsson
slökkviliðsstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Bartosz Skrzypkowski
Byggingarfulltrúi
Dagskrá
1.
Byggingarleyfisumsókn: Víkurbraut 27A-H: raðhús
Umsókn frá JEK ehf. um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir 8 íbúða raðhús að Víkurbraut 27. Um er að ræða íbúðir fyrir aldraða.
Graftrarleyfi samþykkt 05.06.2020. Lagt fram til kynningar
2.
Byggingarleyfisumsókn: Jöklasel F2181954 - niðurrif
Endurupptaka máls frá 1. afgreiðslufundi þann 30.04.2020
Leyfi til niðurrifs samþykkt þann 28.05.2020. Lagt fram til kynningar
3.
Byggingarleyfisumsókn: Miðós 17 - færsla á dyraopi
Sótt er um útlitsbreytingu á vestur og suðurhlið Miðóss 17, Höfn. Sótt er um að loka dyraopi á vesturhlið og ganga frá því í samræmi við núverandi útlit. Einnig er sótt um að setja nýjar dyr á suðurhlið hússins.
Byggingaráform samþykkt.
4.
Byggingarleyfisumsókn: Stafafell 45a - Frístundahús
Umsókn um byggingarleyfi fyrir frístundahús byggt árið 2010 á lóð nr. 45a í Stafafellsfjöllum.
Mannvirki í samræmi við deiliskipulag. Nýlagðar teiknignar samþykktar. Yfirlýsing vegna þegar byggt hús til staðar. Byggingarleyfi samþykkt.
5.
Tilkynning um framkvæmd: Stafafellsfjöll 45a - viðbygging við sumarhús
Tilkynning um framkvæmd vegna viðbyggingar við frístundahús að lóð 45a í Stafafell.
Viðbygging í samræmi við deiliskpulag. Framkvæmd uppfyllir kröfur h-líð 2.3.5. gr. 112/2012. Tilkynning samþykkt.
6.
Stöðuleyfisumsókn: Miðós: 4 gáma
Sótt er um stöðuleyfi fyrir fjóra gáma við suðurhlið núverandi ketilhúss bræðslunnar í Óslandi. Þeir eru ætlaðir til tilraunar við starfsemi sem miðast við að framleiða þurrkaða nagvöru fyrir gæludýr (hunda). Unnar verða vörur úr frystum og ferskum sjávarafurðum og felur vinnslan í sér sögun/formun, þurrkun og pökkun á afurðum.
Stöðuleyfi samþykkt.
7.
Ábending: Stafafellsfjöll 7 - frístundahús
Ábending vegna eftirlitsskyldu Sveitarfélagsins með skipulagsmálum miðað við staðsetningu hússins nr. 7 í Stafafellsfjöll.
Borgþór vék af fundi undir þessum lið. Verið er að vinna áfram í málinu.
8.
Ábending: Stafafellsfjöll 12 - frístundahús
Ábending vegna eftirlitsskyldu Sveitarfélagsins með skipulagsmálum miðað við staðsetningu hússins nr.12 í Stafafellsfjöll
Framkvæmd við gestahús á lóð nr. 12 var tilkynningarskyld og því ekki gerð krafa um úttektir skv. 2.3.6. gr 112/2012. Nýtt gestahús er staðsett 6.11m frá lóðarmörkum. Verið er að vinna áfram í málinu.