Fara í efni

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

4. fundur
9. júlí 2020 kl. 09:00 - 09:15
skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
Bartosz Skrzypkowski byggingarfulltrúi
Borgþór Freysteinsson slökkviliðsstjóri
Gestur Leó Gíslason verkefnastjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Bartosz Skrzypkowski Byggingarfulltrúi
Dagskrá
1.
Stöðuleyfisumsókn: Jökulsárlón: 3 salernisgámar - endurnýjun á leyfi
Málsnúmer 202007014
Umsókn um endurnýjun á stöðuleyfi vegna salernisgáma við Jökulsárlón. Sótt er um fyrir hönd Vatnajökulsþjóðgarðs. Rekstur er óbreyttur frá fyrra leyfi.
Endurnýjun á stöðuleyfi samþykkt. Kynjaskipta skal salerni og merkja þá þannig.
2.
Byggingarleyfisumsókn: Víkurbraut 27A-H: raðhús
Málsnúmer 202004049
Umsókn frá JEK ehf. um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir 8 íbúða raðhús að Víkurbraut 27. Um er að ræða íbúðir fyrir aldraða.
Byggingarleyfi samþykkt.
3.
Byggingarleyfisumsókn: Borgir - frístundahús
Málsnúmer 202005102
Áform um að byggja orlofshús á einni hæð. Sökklar og plata verða steypt, veggir og þak verða úr timbri.
Byggingaráform samþykkt.