Fara í efni

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

5. fundur
31. júlí 2020 kl. 09:30 - 11:20
skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
Bartosz Skrzypkowski byggingarfulltrúi
Friðrik Kristjánsson
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Bartosz Skrzypkowski Byggingarfulltrúi
Dagskrá
1.
Byggingarleyfisumsókn: Horn 1 - breyting á geymslu
Málsnúmer 201709103
Ómar Antonsson sækir um byggingarleyfi til að breyta geymsluhúsnæði matshluta 07 að Horn 1 í stóra íbúð og 3 gistirými.
Byggingarleyfi samþykkt.
2.
Byggingarleyfisumsókn: Árbær/Þingskálar - einbýlishús
Málsnúmer 201905064
Sæmundur Jón Jónsson og Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir sækja um byggingarleyfi til að reisa einbýlishús við Árbæ-Þingskálahóla á Mýrum skv. teikningum unnum af Teiknistofunni Örk.
Byggingarleyfi samþykkt.
3.
Byggingarleyfisumsókn: Ægissíða 55 - endurbygging fjárhúss
Málsnúmer 202004083
JAvet ehf sækir um leyfi til að endurbyggja fjárhús að Ægissíðu 55 skv. teikningum unnum af Verkhof ehf. Húsið verður gert í sama formi og núverandi hús og byggt á núverandi sökklum.
Byggingarleyfi samþykkt.
4.
Byggingarleyfisumsókn: Hafnarbraut 34 - breyting á notkun
Málsnúmer 202006017
Gæti ehf sækir um leyfi fyrir breytingu á notkun eignar 0103 að Hafnarbraut 34. Um er að ræða breytingu á starfsemi úr þvottahúsi og verslun í veitingastað í flokki 2 skv. teikningum unnum af Gláma Kím.
Fyrirhuguð notkun samræmist deiliskipulagsskilmálar. Jákvæðar umsagnir HAUST og Vinnueftirlits. Byggingarleyfi samþykkt.