Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa
9. fundur
18. desember 2020
kl.
10:30
-
11:00
skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
Bartosz Skrzypkowski
byggingarfulltrúi
Brynja Dögg Ingólfsdóttir
umhverfis- og skipulagstjóri
Borgþór Freysteinsson
slökkviliðsstjóri
Gestur Leó Gíslason
verkefnastjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Bartosz Skrzypkowski
Byggingarfulltrúi
Dagskrá
1.
Eftirlitsferðir byggingarfulltrúa - niðurstöður
Byggingarfulltrúi fer yfir niðurstöður eftirlitsferðar 08.12.2020
Lagt fram til kynningar
2.
Byggingarleyfisumsókn: Aðalból í Lóni - tækjageymsla
Aðalsteinn Ingólfsson sækir um leyfi til að byggja tækjageymslu við Aðalból í Lóni. Bæjarstjórn hefur ákveðið að falla frá grenndarkynningu á 277. fundi sínum. Minjastofnun Íslands gerði alverlegar athugasemdir við að framkvæmdir hafi hafist áður en umsögn stofnunarinnar lá fyrir.
Byggingarleyfi samþykkt.
3.
Stöðuleyfisumsókn - Miðós 17, sex gámar
Kjartan Árnason sækir fyrir hönd Skinney Þinganess um stöðuleyfi fyrir sex gáma á steypta jarðlæga plötu. Fyrirhuguð er að setja tvo gáma til viðbótar við fjóra sem hafa fengið stöðuleyfi númer 202006002, og hafa alla sex gáma á nýju leyfi. Til staðar er umsögn slökkviliðsstjóra.
Stöðuleyfi samþykkt.