Almannavarnanefnd
56. fundur
6. júlí 2018
kl.
18:00
-
19:15
í Hofgarði
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
formaður
Jón Garðar Bjarnason
aðalmaður
Kristín Hermannsdóttir
1. varamaður
Árdís Erna Halldórsdóttir
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Dagskrá
1.
Almannavarnir: Svínafellsjökull
Mælst hefur verið til þess að ferðaþjónustu fyrirtæki fari ekki með ferðamnenn á Svínafellsjökul og hafa þeir aðilar sem voru með ferðir á jökulinn verið að aðlaga sig þessum aðstæðum og finna nýjar leiðir.
Ákveðið hefur verið að bíða með öll ný skipulagsáform á áhrifasvæðinu meðan beðið er frekari niðustaða úr mælingum og niðurstaða frá vísindamönnum.
Næstu daga verður farið í árlegar mælingar á spurngunni og fleiri mælitækjum komið fyrr sem munu gefa betri mynd af ástandinu. Stefnt er að því að mælingarnar verði aðgengilegar á veraldarvefnum þannig að hægt sé að fylgjast þar með þróun mála. Tryggja þarf fjármagn til rannsóknastarfs.
Rætt um að takmarka verði enn frekar umferð á Svínafellsjökul. Mikil umferð er um Hafrafellsveg er þarfnast lagfæringa. Rætt um að loka þeim veg fyrir akandi umferð og draga með því úr umferð og hættu á því að gist sé í bílum í nálægð jökulsins.
Unnið er að hættumati vegna byggðar og rýmingaráætlun vegna berghlaups úr Svínafellsheiði.
Á seinni fundinn kl. 20:00 voru boðaðir til viðbótar við þá sem mættu kl. 18:00 ferðaþjónustuaðilar sem starfa á svæðinu og fleiri fulltrúar viðbragðsaðila. Tómas Jóhannesson frá veðurstofunni og Helga Árnadóttir þjóðgarðsvörður voru með framsögu á þeim fundi.
Þar var farið yfir stöðuna, samvinnu og upplýsingaflæði vegna málsins. Starfsmenn Vatnajökulsþjóðgarðs vinna að því í samvinnu við ferðaþjónustuna að finna nýja áfangastaði og veita upplýsingar.
Unnið er að upplýsingaskilti sem vara mun við hættunni bæði á íslensku og ensku. Mikið rætt um aðgengi almennings að jöklinum, hvernig hægt sé að takmarka aðgengi og veita upplýsingar. Fólk almennt sammála um að stefna beri að því að loka aðkomuvegum fyrir akandi umferð og komu skiltum og fræðslu upp sem fyrst.