Fara í efni

Almannavarnanefnd

57. fundur
24. október 2018 kl. 17:30 - 19:00
í Hofgarði
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir formaður
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Jón Garðar Bjarnason aðalmaður
Einar Sigurjónsson 1. varamaður
Jens Olsen aðalmaður
Kristín Hermannsdóttir 1. varamaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson upplýsinga- og umhverfisfulltrúi
Dagskrá
1.
Íbúafundur í Öræfum vegna almannavarna
Málsnúmer 201810058
Matthildur gerði grein fyrir dagskrá fundar almannavarnarnefndar með íbúum sveitarfélagsins í Hofgarði kl. 20:00 fundurinn var auglýstur með dreifibréfi til íbúa og á netmiðlum.Gerð var grein fyrir breytingum á Svínafellsheiði og Öræfajökli.
Matthildur bauð gesti fundarins velkomna. Kristín Jónsdóttir, hópstjóri náttúruvöktunar, fór yfir stöðu mála í Öræfajökli. Virkni Öræfajökuls er nú dæmigerð fyrir eldfjöll sem búa sig undir eldgos. Virknin getur hætt áður en til goss kemur en um það er ekkert hægt að segja á þessu stigi.

Þorsteinn og Jón fóru yfir þær mælingar sem hafa verið gerðar á sprungu á Svínafellsheiði í sumar. Flatarmál svæðisins sem er á hreyfingu norðan sprungunnar er um 1 km2 og gróft mat gefur til kynna að rúmmál efnisins sem hreyfist sé um eða yfir 60 milljón m3. Í lok september hefur verið komið upp vöktunarbúnaði sem byggir á tveimur óháðum síritandi mælitækjum (GPS- og gliðnunarmælum). Reynslan bendir til að nokkur aðdragandi sé að stórum berghlaupum. Viðbúnaður við hættu á berghlaupi í nærliggjandi byggð neðan við Svínafellsjökul byggir á því að vöktun með þeim mælibúnaði, sem komið hefur verið upp, gefi nægan fyrirvara til þess að bregðast við og rýma hættusvæði þegar hlaup er talið yfirvofandi.

Fundað var sérstaklega með íbúum á því svæði sem talið er að berghlaupið hefði mestu áhrif á auk þess sem farið var yfir stöðuna á opnum íbúafundi. Unnið er að rýmingaráætlun fyrir áhrifasvæðið. Í grunnin mun notast við SMS kerfið við boðun á rýmingu en aðrar leiðir eru í skoðun þ.a.m. viðvörunarflautur.

Næstu skref er áframhaldandi vöktun á svæðinu, framkvæma frekari mælingar og rannsóknir á svæðinu þegar aðstæður leyfa. Fyrirhugaður er vinnufundur með erlendum sérfræðingum hjá Veðurstofunni. Unnið er að rýmingaráætlun og hættumati. Matthildur og Víðir greindu frá mikilvægt þess að samræma upplýsingar um þróun mála á svæðinu. Sveitarfélagið mun setja upp þrjú viðvörunarskilti á svæðinu, eitt á Hafrafellsveg með það að markmiði að loka veginum, annað fyrir ofan Freysnes og það þriðja við Svínafell.


2.
Viðbragðsáætlun almannavarnarna
Málsnúmer 201809077
Viðbragðsáætlun við samfélagsáföllum er í vinnslu og yfirlestri hjá lykilstarfsmönnum sveitarfélagsins. Starfsmanni falið að vinna áfram að áætluninni í samstarfi við starfsmann Almannavarnda á Suðurlandi.