Fara í efni

Almannavarnanefnd

61. fundur
5. mars 2020 kl. 14:00 - 15:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir formaður
Grétar Már Þorkelsson aðalmaður
Jón Garðar Bjarnason aðalmaður
Guðrún Dadda Ásmundardóttir starfsmaður HSSA
Finnur Smári Torfason 1. varamaður
Kristín Hermannsdóttir 1. varamaður
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Sóttvarnir: Wuhan-kórónaveira
Málsnúmer 202001112
Farið yfir stöðu mála varðandi útbreiðslu COVID-19.
Sem stendur hefur enginn hefur greinst með smit í Sveitarfélaginu Hornafirði og enginn er í sóttkví.
Allar aðgerðir og viðbrögð almannavarna á Hornafirði eru samkvæmt leiðbeiningum Sóttvarnalæknis og Almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra. Haldinn verður upplýsingafundur í Öræfum í kvöld fyrir viðbragðsaðila á Suðurlandi, þá sem tilheyra austurhluta þess. Stefnt er að því að halda upplýsingafund fyrir íbúa í næstu viku. Sveitarfélagið mun setja frétt inn á vefinn hornafjordur.is.