Fara í efni

Almannavarnanefnd

63. fundur
1. október 2020 kl. 14:00 - 16:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir formaður
Grétar Már Þorkelsson aðalmaður
Kristín Hermannsdóttir 1. varamaður
Finnur Smári Torfason
Björn Ingi Jónsson verkefnastjóri almannavarnanefndar
Kjartan Þorkelsson lögreglustjóri
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Almannavarnir: Svínafellsjökull
Málsnúmer 201807008
Nú eru drög að skýrslunni um hættumat vegna berghlaups úr Svínafellsheiði tilbúin til yfirlestrar.
Sigríður Sif Gylfadóttir kynnti hættumat vegna berghlaups úr Svínafellsheiði. Ákveðið að halda kynningarfundi fyrir hagsmunaaðila og jafnframt sérfund fyrir almenning í gegnum fjarfund.
2.
Erindisbréf almannavarnarnefndar
Málsnúmer 201902035
Starfsmanni falið að laga erindisbréfið í samræmi við athugasemdir og senda nefndarmönnum til samþykktar.
3.
Sóttvarnir: COVID-2019
Málsnúmer 202003021
Jákvæð smit í Sveitarfélaginu Hornafirði eru nú sex og fjórir einstaklingar eru í sóttkví. Komið hefur fram að loka þurfti Grunnskóla Hornafjarðar í síðustu viku vegna smitrakningar og fóru þá um 80 einstaklingar í sóttkví í kjölfarið. Rakning fór að mestu fram í heimabyggð og gekk vel að samstilla aðgerðir. Skimun í lok sóttkvíar kom vel út og hefur enginn greinst jákvæður af Covid í kjölfarið. Sóttvarnir virðast því hafa skilað góðum árangri. Jákvæð smit eru að greinast víða á Suðurlandi, þó er ekki um neinar hópsýkingar að ræða. Við hvetjum íbúa til að huga sérstaklega vel að einstaklingsbundnum sóttvörnum og nota grímur þar sem fjarlægðarmörkum er ekki náð.