Almannavarnanefnd
64. fundur
26. október 2021
kl.
12:00
-
13:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
formaður
Grétar Már Þorkelsson
aðalmaður
Jón Garðar Bjarnason
aðalmaður
Guðrún Dadda Ásmundardóttir
starfsmaður HSSA
Finnur Smári Torfason
Björn Ingi Jónsson
verkefnastjóri almannavarnanefndar
Kjartan Þorkelsson
lögreglustjóri
Elín Freyja Hauksdóttir
Starfsmenn
Matthildur Ásmundardóttir
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði:
Matthildur Ásmundardóttir
bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Fundur með almannavarnadeild ríkislögreglustjóra
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra mun fara í fundarferð um landið næsta mánuðinn. Von er á þeim til Hornafjarðar 14. desember.
Lagt fram til kynningar.
Ákveðið að bjóða fleiri fulltrúum á fundinn sem tengjast almannavörnum á einhvern hátt.
Ákveðið að bjóða fleiri fulltrúum á fundinn sem tengjast almannavörnum á einhvern hátt.
2.
Almannavarnir: Svínafellsjökull
Farið yfir stöðu mála. Skipulagsstofnun er með málið til skoðunar til að ráðleggja sveitarfélaginu varðandi skipulag íbúðabyggða o.fl. á hættusvæði. Til skoðunar að halda íbúafund í tengslum við komu starfsmanna almannavarnardeildar ríkislögreglustjóra.
3.
Viðbragðsáætlun almannavarna
Til umræðu er langtímaáætlun sveitarfélagsins við samfélagslegum áföllum en þörf er á endurskoðun. Viðbragðsáætlun vegna eldgoss í Öræfajökli er í vinnslu og til umræðu að halda æfingu í Öræfum.
Almennar umræður um verkefni almannavarna á Suðurlandi og þær viðbragðsáætlunar sem eru í vinnslu.