Fara í efni

Almannavarnanefnd

71. fundur
22. september 2026 kl. 15:30 - 16:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Alexander Vigfússon
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
Stefán Freyr Jónsson
Elín Freyja Hauksdóttir
Friðrik Jónas Friðriksson
Bjarki Oddsson
Jón Gunnar Þórhallsson
Grímur Hergeirsson
Einar Sigurjónsson
Starfsmenn
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Kosning formanns og varaformanns
Málsnúmer 202609082
Grímur Hergeirsson, lögreglustjóri boðaði til fundar samkvæmt samþykktum nefndarinnar og stýrði fundi í upphafi.
Grímur lagði til að Einar Sigurjónsson, aðalvarðsstjóri, yrði kjörinn formaður og Ásgerður K. Gylfadóttir til vara.
Samþykkt samhljóða.
Einar tók við fundarstjórn.
2.
Fjárhagsáætlun almannavarnarnefndar
Málsnúmer 202609084
Fyrir fundinum lá samningur um sameiginlega starfsmann í almannavörnum. Samkvæmt samningi er greitt 250 kr. pr íbúa á ári.
Hjalti upplýsti að unnið sé að fjárhagsáætlun og hún verði tilbúin fyrir næsta fund nefndarinnar. Upplýst var á fundinum að aðrar almannavarnarnefndir í lögregluumdæminu leggi til 100 kr pr í íbúa í annan kostnað sem geti meðal annars nýst við undirbúning og framkvæmd æfinga. Nefndin leggur til að unnið verði samkvæmt því í fjárhagsáætlunarvinnunni.
3.
Erindisbréf almannavarnarnefndar
Málsnúmer 201902035
Fyrir fundinum lágu samþykktir fyrir almannavarnarnefnd Hornafjarðar frá 2023.
Grímur ræddi um að víðast væri slökkviliðsstjóri með setu í almannavarnarnefndum. Hjalti upplýsti að samþykkt um stjórn og fundarsköp væru í endurskoðun og erindisbréf ýmissa nefnda samhliða. Taldi að endurskoðun samþykkta fyrir almannavarnarnefnd ætti heima í þeim farvegi. Fundurinn sammála að rýna samþykktir nefndarinnar og leggja til breytingar á næsta fundi. Formaður mun halda utan um tillögur að breytingum og undirbúa fyrir næsta fund.
4.
Atviksáætlun fyrir Hornafjarðarflugvöll
Málsnúmer 202609083
Fyrir fundinum lá endurskoðuð atviksáætlun fyrir Hornafjarðarflugvöll.
Bjarki Oddsson gerði grein fyrir atviksáætluninni og helstu breytingum sem gerðar hafa verið á henni. Áætlunin lögð fram til samþykktar.
Samþykkt samhljóða.
5.
Önnur mál
Málsnúmer 201208018
Hjalti gerði grein fyrir fundi sínum með fulltrúum lögreglunnar í aðdraganda fundarins um ýmis samstarfsverkefni og var þar nefnt samstarf um löggæslumyndavélar, drónaverkefni og verkefnið Öruggara Suðurland. Þá nefndi hann að mál sem sérstaklega eigi erindi við Almannavarnarnefnd hafi verið rædd, eins og mögulegt berghlaup úr Svínafellsheiði, undirbúning að björgunarmiðstöð í Öræfum og bætt fjarskipti.
Grímur sagði að komið væri að endurnýjun og dýpri vinnu við rýmingaráætlun vegna náttúruvár í Öræfum.
Ásgerður lagði áherslu á að hætta á skriðum úr Hvalnes- og Þvottárskriðum væri undir stöðugri vöktun í vatnsveðrum.
Bjarki gerði grein fyrir starfi sínu sem verkefnastjóri almannavarna og helstu verkefnum sem eru á döfinni.
Nefndarmenn eru sammála að fá kynningu frá Veðurstofunni á stöðunni í Svínafellsheiði og Vegagerðinni um vöktun á Hvalnes- og Þvottárskriðum á næsta fundi.
Nefndin sammála um að funda að minnsta kosti fjórum sinnum á ári og næsti fundur verði þriðjudaginn 1. desember kl. 14.00.